Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
16. febrúar 2026

Bor­að eft­ir vatni í Vatns­heiði

Borun er hafin eftir vatni í Vatnsheiði, rétt austan Grindavíkur. Um er að ræða áfanga í leit að nýju varavatnsbóli fyrir bæinn á vegum Vatnsveitu Grindavíkur.

Á svæðinu eru eldri ferskvatnsholur sem notaðar voru af varnarliðinu á sínum tíma. Fyrri rannsóknir benda til þess að þar megi finna neysluhæft vatn, þó þær holur varnarliðsins séu nú ónýtar.

Ný borhola er staðsett í um 80 metra hæð yfir sjávarmáli og er þannig landfræðilega vel varin gagnvart náttúruvá á borð við hraunrennsli og fjarri sprungusveimum.

Um er að ræða tvískipt verkefni. Í fyrri áfanga verður borað eftir vatni auk þess sem fram fara álags- og gæðaprófanir. Reynist vatnið nægilegt að magni og uppfylli kröfur um neysluhæfi tekur við síðari áfangi verkefnisins, sem felur í sér að tengja vatnsbólið við veitukerfi Vatnsveitu Grindavíkur.

Við hönnun nýrrar vatnsmóttökustöðvar við Grindavíkurveg (Klifhólabrunn) var gert ráð fyrir tengingu frá mögulegu varavatnsbóli á þessu svæði. Sá áfangi er umfangsmeiri og mun m.a. taka mið af legu nýs Suðurstrandarvegar sem áætlað er að liggi sunnan varnargarðana við Grindavík.