Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni
23. september 2026

Bóka­safn Grinda­vík­ur opnar á ný

Bókasafn Grindavíkur opnar á ný mánudaginn 28. september kl. 17.00. Safnið hefur verið lokað frá rýmingu Grindavíkur í nóvember 2023 og því er um kærkomin tímamót að ræða.

Bókasafnið á sér langa og merka sögu í Grindavík en upphaf þess má rekja til ársins 1904 þegar Lestrarfélag Grindavíkur var stofnað. Í gegnum tíðina hefur safnið verið til húsa víða um bæinn, meðal annars í turni gömlu kirkjunnar, skólum bæjarins, Kvenfélagshúsinu, Læknishúsinu og Festi.

Safnið hefur frá upphafi gegnt mikilvægu hlutverki í menningar- og samfélagslífi Grindavíkur. Í frétt í Bæjarbót frá árinu 1983 kemur meðal annars fram að safnið hafi lánað bókakassa um borð í skip svo sjómenn gætu notið góðra bóka á sjónum. Þá voru útlán safnsins um 18.000 bækur árið 1982, sem sýnir vel hversu stóran sess bókasafnið skipaði í daglegu lífi Grindvíkinga.

Nýtt skipulag og breytt bókasafn

Nú hefst nýr kafli í þessari löngu sögu. Núverandi húsnæði bókasafnsins var tekið í notkun árið 2014 og er það í góðu standi þrátt fyrir að safnið hafi verið lokað undanfarin tæp þrjú ár. Á síðustu vikum hefur verið unnið að breytingum á innra skipulagi og uppsetningu safnsins með það að markmiði að bæta aðstöðu og nýtingu rýmisins.

Jafnframt hefur þurft að endurskipuleggja bókakost safnsins. Fjöldi bóka var í útláni þegar Grindavík var rýmd í nóvember 2023 og hefur hluti þeirra ekki skilað sér aftur á safnið. Fullur skilningur er sýndur á þeim aðstæðum sem lánsþegar hafa búið við í kjölfar rýmingarinnar. Vegna þessa hefur þurft að leggjast í vinnu við að yfirfara allan safnkost til að sjá hvaða bækur safnið hefur í raun að geyma. Þessi vinna mun halda áfram án þess að gestir bókasafnsins verði þess varir.

Mikil tilhlökkun að opna dyr bókasafnsins á ný

Það er einstakt að fá að taka þátt í því að opna bókasafnið á ný eftir svo langa lokun. Mikil vinna hefur átt sér stað á síðustu vikum og ég hlakka til að taka á móti Grindvíkingum og sjá safnið lifna við á ný

segir Anna María Cornette, forstöðumaður Bókasafns Grindavíkur.

Hátíðleg opnun 28. september

Í tilefni af opnuninni verður boðið upp á veitingar og skemmtilega dagskrá fyrir gesti.

Rithöfundarnir Matthildur Yrsa Sigurðardóttir og Þórunn Rakel Gylfadóttir verða sérstakir gestir og lesa upp úr bók sinni Síðasti dagurinn. Bókin hlaut Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 og verður hægt að kaupa hana á staðnum.

Grindvíkingar á öllum aldri eru hvattir til að líta við, skoða breytingarnar og fagna því saman að bókasafnið sé loksins opið á ný.

Opnunartími bókasafnsins í vetur:

Bókasafnið verður opið nemendum Grunnskóla Grindavíkur fjóra daga vikunnar í vetur. Þá verður safnið opið almenningi á fimmtudögum frá klukkan 13.00 til 17.00.

Verið hjartanlega velkomin á opnun safnsins mánudaginn 28. september kl. 17.00.