Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
27. mars 2026

Bæj­ar­stjórn­ar­fund­ur 31. mars

Boðað hefur verið til fundar í bæjarstjórn Grindavíkur þriðjudaginn 31. mars. Fundurinn hefst kl. 14:00 í fundarsal bæjarstjórnar og er opinn almenningi.

Dagskrá:

Almenn mál

1. 2505005 - Svæðisskipulag Suðurnesja - Tillaga

Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja hefur sent sveitarfélaginu tillögu að endurskoðuðu svæðisskipulagi Suðurnesja 2024-2040 til samþykktar í bæjarstjórn. Er þetta í samræmi við 2. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og bókun nefndarinnar á fundi nr. 57 þann 12. mars sl.

Innviðanefnd samþykkti erindið á fundi þann 23. mars sl. og vísaði til afgreiðslu bæjarstjórnar.

2. 2601024 - Dreifing búfjáráburðar til uppgræðslu á svæði milli varnargarða

Tekin er fyrir umsókn hestamannafélagsins Brimfaxa varðandi dreifingu búfjáráburðar til uppgræðslu á svæði milli varnargarða. Umsögn frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja vegna málsins lögð fram ásamt upplýsingum frá Brimfaxa.

Innviðanefnd gerði ekki athugasemd við áformin á fundi þann 23. mars. sl. og vísaði erindinu til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.

3. 2602049 - Styrkbeiðni vegna heimildarmyndar

Lögð fram viðaukabeiðni að upphæð kr. 1.500.000 vegna heimildarmyndar og söfnunar heimilda um rýmingu Grindavíkur 10. nóvember 2023.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina og að hún verði fjármögnuð með lækkun á handbæru fé.

4. 2603035 - Beiðni um viðauka - Aukin opnun íþróttamannvirkja

Óskað er eftir viðauka að fjárhæð kr. 2.365.000 vegna fjölgunar opnunardaga í íþróttamannvirkjum.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukabeiðnina og að hún verði fjármögnuð með lækkun á handbæru fé.

5. 2602072 - Þjónustugjaldskrá Grindavíkurbæjar 2026

Lögð fram þjónustugjaldskrá fyrir árið 2026 til samþykktar.

Gjaldskráin er að mestu sömu fjárhæðir og giltu fyrir árið 2024.

Almenn mál - umsagnir og vísanir

6. 2603054 - Könnun um einföldun regluverks um verkefni sveitarfélaga

Lögð fram til kynningar umsögn í samráðsgátt um tækifæri til að einfalda löggjöf um leyfisveitingar til viðgerðar innviða eftir náttúruhamfarir.

Fundargerðir til kynningar

7. 2602004 - Fundargerðir 2026 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga

Fundargerð 993. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 18.02.2026 er lögð fram til kynningar.

8. 2602004 - Fundargerðir 2026 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga

Fundargerð 994. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 03.03.2026 er lögð fram til kynningar.

9. 2602004 - Fundargerðir 2026 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga

Fundargerð 995. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 10.03.2026 er lögð fram til kynningar.

10. 2602004 - Fundargerðir 2026 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga

Fundargerð 996. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 20.03.2026 er lögð fram til kynningar.

11. 2602047 - Fundargerðir 2026 - Samtök orkusveitarfélaga

Fundargerð 90. fundar stjórnar samtaka orkusveitarfélaga, dags. 28. janúar 2026 er lögð fram til kynningar.

12. 2601031 - Fundargerðir 2026 - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum

Fundargerð frá 821. fundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 11. mars 2026 er lögð fram til kynningar

13. 2601051 - Fundargerðir stjórnar Reykjanes jarðvangs 2026

Fundargerð 93. fundar stjórnar Reykjanes jarðvangs dags. 23.02.2026 er lögð fram til kynningar.

14. 2603040 - Fundargerðir 2026 - Þekkingarsetur Suðurnesja

Fundargerð 59. fundar Þekkingarseturs Suðurnesja frá 19.02.2026 lögð fram til kynningar.

15. 2602011 - Fundargerðir - Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2026

Fundargerð 323. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja dags. 25.03.2026 er lögð fram til kynningar.

16. 2602011F - Bæjarráð Grindavíkur - 1704

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

17. 2603001F - Bæjarráð Grindavíkur - 1705

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

18. 2603005F - Bæjarráð Grindavíkur - 1706

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

19. 2603006F - Innviðanefnd - 15

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.