Bæjarstjórnarfundur 28. apríl
Boðað hefur verið til fundar í bæjarstjórn Grindavíkur þriðjudaginn 28. apríl. Fundurinn hefst kl. 14:00 í fundarsal bæjarstjórnar og er opinn almenningi.

Dagskrá:
Almenn mál
1. 2604044 - Ályktun almenns íbúafundar um framtíð Grindavíkur
Ályktun almenns íbúafundar um framtíð Grindavíkur frá 22. apríl 2026 lögð fram.
2. 2602070 - Skólahald í Grindavík - Haust 2026
Vísað til bæjarstjórnar frá bæjarráði
Taka þarf ákvörðun um skólahald leik- og grunnskóla haustið 2026.
3. 2508017 - Samþykkt um breytingu á Samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar nr. 530-2022
Breyting á samþykktinni til fyrri umræðu:
Nefndir verða 2 og 5 nefndarmenn í hvorri:
Innviðanend
Samfélagsnefnd
Ekki tilbúið að svo stöddu:
Breyting vegna barnaverndar, gæti komið inn fyrir fundinn.
4. 2604009 - Auglýsingar á íþróttaleikjum 2026
Lagt fram erindi frá körfuknattleiksdeild UMFG þar sem Grindavíkurbæ býðst að kaupa auglýsingar á leikjum mfl. karla og kvenna í úrslitakeppni Bónus-deildarinnar í vor.
Bæjarráð samþykkir styrk til aðalstjórnar UMFG sem skiptist jafnt á milli körfuknattleiks- og knattspyrnudeildar og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 3.500.000 kr. við fjárhagsáætlun 2026 sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
5. 2603033 - Björgunarsveitin Þorbjörn - styrkbeiðni
Bæjarráð samþykkir styrk að fjárhæð 5.000.000 kr. og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að sömu fjárhæð sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.
6. 2603050 - Starfsemi á frístunda- og menningarsviði haustið 2026
Taka þarf ákvörðun um umfang starfsemi á frístunda- og menningarsviði veturinn 2026-2027.
7. 2604026 - Reglur um rafræna vöktun
Drög að reglum um rafræna vöktun lögð fram.
8. 2604043 - Hraunavá á Reykjanesskaga - Langtímahættumat
Veðurstofa Íslands hefur gefið út langtímahættumat vegna hraunavár. Hættumatið nær frá Reykjanestá í vestri að Ölfusá í austri og Hvalfirði í norðri.
9. 2604032 - Ársuppgjör 2025 - Grindavíkurbær og stofnanir
Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2025 er lagður fram til fyrri umræðu.
Vísa þarf honum til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Fundargerðir til kynningar
10. 2601031 - Fundargerðir 2026 - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
Fundargerð frá 822. fundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 15. apríl 2026 er lögð fram til kynningar
11. 2601051 - Fundargerðir stjórnar Reykjanes jarðvangs 2026
Fundargerð 94. fundar stjórnar Reykjanes jarðvangs dags. 16.03.2026 er lögð fram til kynningar.
12. 2604035 - Fundargerðir 2026 -Kalka sorpeyðingarstöð
Fundargerð 576. stjórnarfundar Kölku dags. 13.01.2026 er lögð fram til kynningar.
13. 2604035 - Fundargerðir 2026 -Kalka sorpeyðingarstöð
Fundargerð 577. stjórnarfundar Kölku dags. 10.02.2026 er lögð fram til kynningar.
14. 2604001F - Bæjarráð Grindavíkur - 1707
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
15. 2604002F - Bæjarráð Grindavíkur - 1708
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
16. 2604005F - Bæjarráð Grindavíkur - 1709
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
17. 2604006F - Innviðanefnd - 16
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
18. 2604004F - Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 95
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
24.04.2026
Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.


