Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni
13. október 2026

Aukin vökt­un og skóla­hald sam­kvæmt áætl­un

Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula veðurviðvörun fyrir Grindavík að morgni 14. október.

Neyðarstjórn Grindavíkurbæjar hefur farið yfir stöðuna vegna veðurviðvörunar og metið þær aðstæður sem kunna að skapast í bænum.

Skólahald verður með óbreyttum hætti að svo stöddu, nema annað verði sérstaklega tilkynnt. Foreldrar eru þó eindregið hvattir til að meta hvort öruggt sé fyrir börn að ferðast til og frá skóla með hliðsjón af veðri, færð og aðstæðum í nærumhverfi.

Foreldrar eru jafnframt hvattir til að fylgja börnum sínum inn í skólann og sækja þau að skóladegi loknum til að tryggja öryggi þeirra. Forföll vegna veðurs eru skiljanleg og skulu tilkynnt skólanum.

Slökkvilið Grindavíkur verður með aukinn viðbúnað á meðan veðurviðvörun er í gildi. Íbúar og aðrir sem dvelja í bænum eru hvattir til að sýna aðgát og ganga tryggilega frá lausamunum sem geta fokið og valdið tjóni.

Fasteignafélaginu Þórkötlu hefur jafnframt verið gert viðvart um stöðuna.

Neyðarstjórn fylgist áfram með þróun mála og verða upplýsingar uppfærðar ef aðstæður breytast.