Almyrkvi á sólu 12. ágúst
Miðvikudaginn 12. ágúst 2026 beinast augu heimsins að Íslandi þegar almyrkvi á sólu verður sýnilegur.

Grindavík er einn þeirra staða þar sem hægt verður að upplifa þetta einstaka náttúrufyrirbæri og því má búast við miklum fjölda gesta í bæinn.
Grindvíkingar bjóða gesti velkomna og eru íbúar og gestir hvattir til að undirbúa sig vel svo öll geti notið dagsins með öruggum og ánægjulegum hætti.
Skipuleggið ferðir vel
Búast má við þungri umferð á vestanverðu landinu dagana fyrir og eftir almyrkvann. Því eru bæði íbúar og gestir hvattir til að skipuleggja ferðir sínar vel og gera ráð fyrir lengri ferðatíma.
Þau sem hyggjast koma til Grindavíkur eru sérstaklega hvött til að:
- leggja tímanlega af stað,
- gera ráð fyrir umferðartöfum,
- velja sér áhorfsstað fyrirfram,
- dvelja um stund í bænum eftir að almyrkvanum lýkur til að draga úr álagi á vegakerfið,
- fylgja leiðbeiningum lögreglu og annarra viðbragðsaðila.
Bílastæði
Gestir eru beðnir um að leggja eingöngu á merktum bílastæðum. Í Grindavík geta gestir lagt bifreiðum við:
- íþróttamannvirkin,
- Grunnskóla Grindavíkur við Ásabraut,
- Hópsskóla.
Þjónusta í Grindavík
Íþróttamannvirki Grindavíkurbæjar verða opin kl. 16:00-21:00. Þar verður meðal annars aðgengi að salernum.
Búast má við auknu álagi á veitingastöðum í bænum þennan dag. Gestir eru hvattir til að gera ráð fyrir biðtíma og sýna starfsfólki, íbúum og öðrum gestum tillitssemi og þolinmæði.
Öryggi í fyrirrúmi
Mikilvægt er að horfa aldrei beint í sólina nema með viðurkenndum og vottuðum sólmyrkvagleraugum. Venjuleg sólgleraugu veita ekki fullnægjandi vörn og geta valdið alvarlegum augnskaða.
Nota þarf sólmyrkvagleraugu allan deildarmyrkvann. Aðeins á meðan almyrkvi stendur yfir, þegar tunglið hylur sólina að fullu, er öruggt að taka þau af í stutta stund. Setjið gleraugun aftur upp um leið og fyrsti hluti sólarinnar verður sýnilegur á ný.
Hægt er að nálgast sólmyrkvagleraugu á bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar og í íþróttahúsinu á meðan birgðir endast.
Nánari upplýsingar
Við hvetjum öll sem hyggjast fylgjast með almyrkvanum til að kynna sér tímasetningar, kort og öryggisleiðbeiningar á upplýsingavefjum stjórnvalda og samstarfsaðila, meðal annars á vef Markaðsstofu Reykjaness, solmyrkvi2026.is og island.is.
Við hlökkum til að taka á móti gestum og vonum að sem flestir geti notið þessarar einstöku upplifunar.


