Eldri borgarar
Eldri borgarar í Grindavík hafa aðgang að fjölbreyttri þjónustu með það að markmiði að styðja sjálfstætt líf, félagslega virkni og öryggi. Þjónustan tekur mið af ólíkum þörfum og aðstæðum fólks og er ætluð til að auðvelda daglegt líf og auka lífsgæði.
Þjónusta við eldri borgara
Eldri borgarar í Grindavík hafa aðgang að þjónustu sem styður við búsetu heima fyrir, félagslega þátttöku og velferð. Lögð er áhersla á að fólk geti búið sem lengst í heimahúsum við öruggar og góðar aðstæður, með viðeigandi aðstoð eftir þörfum.
Þjónustan er veitt í samráði við viðkomandi og miðar að því að efla sjálfstæði, draga úr félagslegri einangrun og styðja við daglegt líf.
Félagsstarf
Félagsstarf eldri borgara er mikilvægur þáttur í þjónustunni og er lögð áhersla á samveru, virkni og vellíðan. Þar gefst tækifæri til að hitta aðra, taka þátt í fjölbreyttu starfi og halda tengslum við samfélagið.
Kvikan, menningarhús Grindvíkinga, er opin miðvikudaga kl. 10:00-12:00. Þar er boðið upp á samverustundir yfir kaffibolla.
Tenglar
- Reglur um stuðningsþjónustu (bara til viðmiðunarreglur)
- Umsókn um ráðgjöf
- Umsókn um íbúð í Víðihlíð