Sviðamessa Lionsklúbbs Grindavíkur
- Bryggjan
- 20. nóv. 2026, kl. 19:00
Lionsklúbbur Grindavíkur endurvekur gamla og góða hefð og býður til veglegrar sviðamessu á Bryggjunni í Grindavík föstudaginn 20. nóvember kl. 20:00.

Nú eru þrjú ár liðin frá rýmingu Grindavíkur og af því tilefni vilja félagar í Lionsklúbbi Grindavíkur efna til góðrar samverustundar þar sem gestir geta notið góðs matar, skemmtunar og félagsskapar.
Á dagskrá verða ávörp Péturs Pálssonar og Péturs Markans en veislustjóri kvöldsins verður Sigurður Þyrill Ingvason. Þá munu Arney Sigurbjörnsdóttir, Tómas Guðmundsson og Sigurbjörn Dagbjartsson sjá um skemmtiatriði.
Miðaverð er 8.000 kr. og hægt er að panta miða í síma 893-5131 eða með tölvupósti á einar_bjarna@simnet.is.
Lionsklúbbur Grindavíkur hvetur alla til að mæta, njóta samverunnar og taka þátt í að endurvekja þessa gömlu og góðu hefð í Grindavík.