Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni

Suss­ið - Upp­lest­ur og stofn­fund­ur

  • Kvikan
  • 12. nóv. 2026, kl. 17:30

Fimmtudag 12. nóvember mun skáldahópurinn Suss halda stofnfund og upplestur í menningarmiðstöðinni Kvikunni.

Fimmtudag 12. nóvember mun skáldahópurinn Suss halda stofnfund og upplestur í menningarmiðstöðinni Kvikunni í Grindavík. Hópurinn samanstendur af þremur skáldum frá Suðurnesjum og þau óska eftir fleirum í klúbbinn. Á þessum stofnfundi mun hópurinn heiðra Guðberg Bergsson eitt fremsta skáld þjóðarinnar sem fæddist í Grindavík. Þau munu lesa sinn hvorn textann eftir Guðberg auk frumsamdra ljóða. Öll eru velkomin og kaffi og piparkökur á meðan birgðir endast. Hópurinn er nefndur eftir sussinu hans Guðbergs.

Kristrún Guðmundsdóttir skáld og þýðandi er fædd í Keflavík árið 1953. Nýjasta bók hennar er Appelsínugulur himinn yfir Austurbæjarskóla (2026). Þetta er fyrsta barnabók Kristrúnar og fjallar sagan um mikilvægi þess að bjóða börnum upp á næði og einbeitingu til sköpunar. Kristrún hefur sent frá sér fjölda ljóðabóka, skáldsögur, óskáldlega matreiðslubók auk þýðinga. Hún hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2000.

Sólmundur Friðriksson er fæddur árið 1967 á Stöðvarfirði og ólst hann þar upp. Hann var um tíma í hljómsveit Geirmundar Valtýssonar, sem bassaleikari og söngvari, árin 1989-1994. Hann kláraði kennaraháskólann vorið 1999 og hefur starfað sem kennari m.a. á Þingeyri, í Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ. Hann hefur tekið þátt í hinum ýmsu skáldaverkefnum s.s. Nema, Andblæ, Raddir að austan og tekið virkan þátt í tónlistarlífi Reykjanesbæjar og er einn af meðlimum karlakvartettsins Kóngar. Sólmundur hefur tekið þátt í viðburðum hjá Reykjanesbæ tengdum ljóðagerð og má þar nefna verkefnið Skáldaskáp sem fram fór á bókasafni Reykjanesbæjar árið 2020 og ljóðahátiðinni Skáldasuð í Reykjanesbæ 2024. Sólmundur hefur ekki enn gefið ljóð sín út en stefnir að útgáfu sinnar fyrstu ljóðabókar á næsta ári.

Garðar Baldvinsson kallar sig Garibaldi fæddist 1954 og hefur gefið út ellefu ljóðabækur. Handritið að sjónbaugum hlaut viðurkenningu Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar árið 2000 en hann hefur einnig hlotið ljóðaverðlaunin Ljósberann. Nýjasta bók hans, Þagnafár, kom út í vor en það er skálduð ævisaga föður hans sem fæddist í Hælavík á Hornströndum. Fjalla ljóðin um áföll sem faðirinn lendir í sem drengur og fylgja honum alla ævi og valda honum iðulega búsifjum.

Gunnhildur Þórðardóttir er fædd í Keflavík árið 1979 og er myndlistarmaður, kennari og skáld. Hún hefur verið virkur myndlistarmaður í rúm tuttugu ár og sýnt verk sín víða á Íslandi og erlendis. Hún hefur starfað við kennslu og safnfræðslu í átján ár og einnig gefið út sjö ljóðabækur og hlotið viðurkenningar fyrir bæði myndlist og ritstörf. Í verkum sínum fléttar hún gjarnan saman myndlist, ljóðlist ásamt heimspekilegum vangaveltum um lífið, náttúruna og samfélagið. Gunnhildur er stofnandi lista - og ljóðahátíðarinnar Skáldasuðs og stofnandi ljóðaverkefnisins Skáldaskápur.
Allar nánari upplýsingar veitir Gunnhildur Þórðardóttir-Place s.8983419 eða á gunnhildurthordar@gmail.com