Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni

Stofn­fund­ur fé­lags at­vinnu­lífs­ins í Grinda­vík

  • Gjáin
  • 27. nóv. 2026, kl. 12:00

Stofnfundur Félags atvinnulífsins í Grindavík verður haldinn föstudaginn 27. nóvember kl. 12:00 í Gjánni í Grindavík.

Markmiðið með stofnun félagsins er að skapa öflugan og sjálfstæðan samstarfsvettvang fyrir atvinnulífið í Grindavík, efla tengsl milli fyrirtækja, standa vörð um sameiginlega hagsmuni og vinna saman að nýjum tækifærum og framtíðaruppbyggingu bæjarins.

Félagið verður vettvangur fyrir fyrirtæki úr ólíkum atvinnugreinum til að sameina krafta sína, móta sameiginlega sýn og vinna að verkefnum sem styrkja atvinnulífið og samfélagið í Grindavík.

Við hvetjum öll fyrirtæki, stór sem smá, einyrkja, stofnanir og félagasamtök sem tengjast Grindavík til að mæta, kynna sér félagið og taka þátt í að móta starf þess frá upphafi.

Verum með frá byrjun og mótum framtíð atvinnulífsins í Grindavík saman!

Meldið ykkur á viðburðinn. Boðið verður upp á súpu í hádeginu.

Sjáumst í Gjánni!

Stofnfundur félags atvinnulífsins í Grindavík - Grindavíkurbær