Stillum saman strengi – áfram Saman í sókn
- Hópsskóli
- 19. ágúst 2026, kl. 15:30–17:00
Miðvikudaginn 19. ágúst kl. 15:30–17:00, verður næsti fundur í verkefninu Grindavík – Saman í sókn .

Fundurinn verður haldinn hjá Fisktækniskólanum að Suðurhópi 2 í Grindavík undir yfirskriftinni Stillum saman strengi.
Pétur Markan, bæjarstjóri Grindavíkur, mun slá taktinn í upphafi fundar áður en horft verður fram á veginn og farið yfir næstu skref.
Saman í sókn hefur skapað vettvang fyrir fyrirtæki í Grindavík til að koma saman, efla tengsl, ræða samstarf og ný tækifæri til verðmætasköpunar. Nú höldum við þeirri vinnu áfram – og viljum fá enn fleiri fyrirtæki að borðinu.
Ef þú ert í rekstri í Grindavík – stórum eða smáum, rótgrónum eða nýjum – þá er þessi fundur fyrir þig. Einyrkjar og frumkvöðlar í rekstri eru að sjálfsögðu einnig velkomnir.
Það er ekki nauðsynlegt að hafa tekið þátt í fyrri fundum eða vinnustofum og alls ekki of seint að koma inn og vera með.
Á fundinum verður farið yfir stöðuna, það sem hefur gerst og hvað er framundan í Saman í sókn. Einnig verður sagt stuttlega frá þátttöku Grindavíkur á IceFish 2026 og þeim tækifærum sem þar geta falist fyrir fyrirtæki sem tengjast sjávarútvegi og þjónustu við greinina.
Kl. 17:30 tekur síðan við fundur á vegum Járngerðar og eru þátttakendur hvattir til að fjölmenna ed