Opnun Bókasafns Grindavíkur
- Bókasafn Grindavíkur
- 28. sept. 2026, kl. 17:00
Bókasafn Grindavíkur opnar á ný mánudaginn 28. september kl. 17.00.

Safnið hefur verið lokað frá rýmingu Grindavíkur í nóvember 2023 og því er um kærkomin tímamót að ræða.
Í tilefni af opnuninni verður boðið upp á veitingar og skemmtilega dagskrá fyrir gesti.
Rithöfundarnir Matthildur Yrsa Sigurðardóttir og Þórunn Rakel Gylfadóttir verða sérstakir gestir og lesa upp úr bók sinni Síðasti dagurinn. Bókin hlaut Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 og verður hægt að kaupa hana á staðnum.
Grindvíkingar á öllum aldri eru hvattir til að líta við, skoða breytingarnar og fagna því saman að bókasafnið sé loksins opið á ný.
Opnunartími bókasafnsins í vetur:
Bókasafnið verður opið nemendum Grunnskóla Grindavíkur fjóra daga vikunnar í vetur. Þá verður safnið opið almenningi á fimmtudögum frá klukkan 13.00 til 17.00.
Verið hjartanlega velkomin á opnun safnsins mánudaginn 28. september kl. 17.00.