Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni

Opin körfu­bolta­æf­ing fyr­ir 9 ára og yngri

  • Íþróttahúsið
  • 29. nóv. 2026, kl. 10:00

Sunnudaginn 29. nóvember býður körfuknattleiksdeild UMFG öllum leikskólabörnum og krökkum í 1.–4. bekk á skemmtilega körfuboltaæfingu í HS Orku-höllinni!

Jóhann Dagur ásamt leikmönnum úr meistaraflokkum karla og kvenna taka á móti krökkunum og sjá um fjöruga æfingu þar sem gleðin verður í fyrirrúmi.

Æfing fyrir leikskólakrakka verður kl. 10:00-10:40 og fyrir 1.-4. bekk kl. 11:00-11:40.

Æfingin er öllum opin og að sjálfsögðu gjaldfrjáls, hvort sem börnin æfa körfubolta eða ekki!

Tilvalið tækifæri til að kynnast körfubolta, hitta leikmennina okkar og eiga skemmtilega stund saman.