Leikhúsferð Félags eldri borgara í Grindavík
- Íþróttahúsið í Grindavík
- 09. okt. 2026, kl. 20:00
Félag eldri borgara í Grindavík stendur fyrir leikhúsferð í Borgarleikhúsið föstudaginn 9. október þar sem farið verður á sýninguna Svikasögur. Sýningin hefst kl. 20:00.

Rúta fer frá Nesvöllum kl. 18:00 fyrir félaga sem búsettir eru á Suðurnesjum, að því gefnu að næg þátttaka fáist. Félagar sem búa á höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi koma sér sjálfir í Borgarleikhúsið og heim að sýningu lokinni.
Miðaverð er 7.000 kr. og þarf að panta og greiða miða í síðasta lagi 20. september.
Greiða skal inn á reikning FEB Grindavík:
Kt.: 570409-1660
Reikningsnúmer: 0146-05-660063
Skráning og nánari upplýsingar:
Ágústa – 897 4750
Maddý – 896 3173