Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Kraft­ur sam­fé­lags­ins

  • Gjáin
  • 19. ágúst 2026, kl. 17:30–19:00

Járngerður, hagsmunasamtök íbúa um framtíð og endurreisn Grindavíkur, býður alla hjartanlega velkomna á Kraft samfélagsins.

Um opinn samfélagsviðburð er að ræða þar sem við komum saman til að eiga uppbyggilega og skemmtilega samverustund.

Samfélagið okkar hefur alltaf byggst á fólkinu sjálfu. Þess vegna viljum við halda áfram að skapa tækifæri til að hittast og eiga góðar stundir saman.

Á dagskránni verður fræðsluerindi, skemmtun og góð samvera.

  •  Pétur G. Markan, bæjarstjóri Grindavíkur, flytur ávarp.
  •  Edda Björgvinsdóttir flytur fyrirlesturinn „Áföll og bjargráðið húmor“.
  •  Bergur Ebbi kemur fram.

Að dagskrá lokinni verður boðið upp á léttar veitingar og gestum gefst tækifæri til að spjalla saman og njóta kvöldsins.

Við vonumst til að sjá sem flesta.
Miðvikudagurinn 19. ágúst kl. 17:30-19:30.
Gjáin, Grindavík

Viðburðurinn er öllum opinn en við hvetjum jafnframt alla til að slást í hópinn með okkur og skrá sig í félagið. Hægt er að skrá sig í félagið með því að senda póst á: jarngerdur@hotmail.com. Félagsgjöld eru 3.000.- á ári.

Þessi viðburðuri er hluti af verkefni Járngerðar sem hlotið hefur styrk frá Rauða krossinum og Rio Tinto.

Kraftur samfélagsins - Grindavíkurbær