Fjörugur föstudagur
- Grindavík
- 27. nóv. 2026, kl. 16:00
Hinn árlegi Fjörugi föstudagur verður haldinn í Grindavík föstudaginn 27. nóvember.

Fjörugur föstudagur er samstarfsverkefni fyrirtækja og stofnana í Grindavík og hefur um árabil markað upphafið að jólaundirbúningnum í bænum. Þá lifnar yfir Grindavík með fjölbreyttri dagskrá, tilboðum og uppákomum víða um bæinn.
Jólastemningin verður að sjálfsögðu í fyrirrúmi, jólasveinar verða á ferðinni og ýmislegt skemmtilegt í boði fyrir alla fjölskylduna.