Bænastund í kirkjugarðinum
- Kirkjugarðurinn
- 29. nóv. 2026, kl. 17:00
Sunnudaginn 29. nóvember, fyrsta sunnudag í aðventu, verður kveikt á krossljósunum í kirkjugarðinum.

Við það tækifæri verða ljósin kveikt á jólatrénu, fluttar bænir og Kór Grindavíkurkirkju syngur.
Aðventan er tími ljóss, vonar og eftirvæntingar en jafnframt tími minninga um liðnar stundir og þau sem ekki eru lengur á meðal okkar.
Við upphaf aðventunnar er því tilvalið að staldra við, tendra ljós hjá látnum ástvinum og minnast þeirra með hlýhug og þakklæti fyrir það ljós sem þau færðu inn í líf okkar.