Aftur heim – Konukvöld Grindavíkur 2026
- Íþróttahúsið í Grindavík
- 19. sept. 2026, kl. 20:00
Körfuknattleiksdeild Grindavíkur býður til glæsilegs konukvölds í Gjánni laugardaginn 19. september.

Yfirskrift kvöldsins er „Aftur heim“ og verður gleði, söngur, hlátur og sannkölluð Grindavíkurstemning í aðalhlutverki.
Guðrún Árný og Grétar Matt leiða söng og stemningu og óvæntur leynigestur mætir á svæðið. Pétur Markan, bæjarstjóri Grindavíkur, verður veislustjóri kvöldsins.
Gestum verður boðið upp á fordrykk við komu og léttar veitingar auk þess sem ýmislegt verður til skemmtunar. Þar má nefna lukkuhjól, happdrætti með glæsilegum vinningum og krýningu konu kvöldsins. Þá fær hver gestur gjafapakka.
Kvöldið verður að sjálfsögðu í litum Grindavíkur – gulu og bláu – með góðum skammti af gylltu í tilefni þess að Grindavík á Íslandsmeistara!
Miðaverð er 6.500 kr. á mann. Hægt er að kaupa borð fyrir átta manns og fylgir þá ein flaska af freyðivíni með borðinu.
Staður: Gjáin, Grindavík
Dagsetning: Laugardagur 19. september
Húsið opnar: Kl. 20:00
Miðasala: https://stubb.is/events/bwL3wn
Aftur heim. Aftur saman. Aftur í Grindavík.