Stuðningsþjónusta
Stuðningsþjónusta felur í sér fjölbreytta aðstoð við daglegt líf með það að markmiði að efla sjálfstæði og lífsgæði. Þjónustan er veitt eftir mat fagaðila og miðar að því að fólk geti búið sem lengst á eigin heimili.
Í stuðningsþjónustu getur m.a. falist:
- Félagslegur stuðningur
- Aðstoð við heimilishald
- Aðstoð við persónulega umhirðu
- Aðstoð við innkaup og erindisrekstur
Þjónustan er skipulögð út frá þörfum hvers og eins og getur verið tímabundin eða til lengri tíma.
Mat á þjónustuþörf
Þjónustuþörf er metin af fagaðila félagsþjónustu. Matið tekur mið af aðstæðum, færni og þörfum viðkomandi og er endurskoðað eftir þörfum.
Umsókn og nánari upplýsingar
Sótt er um stuðningsþjónustu rafrænt. Starfsfólk félagsþjónustu Grindavíkur metur umsóknir auk þess að veita ráðgjöf eftir þörfum.
- Reglur um stuðningsþjónustu (viðmiðunarreglur)
- Umsókn um stuðningsþjónustu