Verklagsreglur vegna vals á íþróttafólki Grindavíkur
1.gr.
Val á íþróttafólki Grindavíkur og afhending hvatningarverðlauna Grindavíkur er samstarfsverkefni samfélagsnefndar Grindavíkurbæjar og aðalstjórnar UMFG.
2.gr.
Allar deildir UMFG sem og íþróttafélög í Grindavík með samstarfssamning við Grindavíkurbæ hafa rétt á að tilnefna einn karl og eina konu sem til greina koma sem íþróttamaður og íþróttakona Grindavíkur. Einnig getur samfélagsnefnd tilnefnt einstaklinga með lögheimili í Grindavík sem skarað hafa fram úr í íþróttum sem ekki er hægt að stunda sem keppnisgreinar í Grindavík og því utan deilda UMFG eða íþróttafélaga í Grindavík.
3. gr.
Allar deildir UMFG sem og íþróttafélög í Grindavík með samstarfssamning við Grindavíkurbæ hafa rétt á að tilnefna eitt lið, hóp eða par sem kemur til greina sem lið ársins. Lágmarksaldur liðsmanna skal vera 13 ár. Einnig getur frístunda- og menningarnefnd tilnefnt lið sem skarað hefur fram úr í íþróttum sem ekki er hægt að stunda sem keppnisgreinar í Grindavík og því utan deilda UMFG eða íþróttafélaga í Grindavík. Horfa skal til hugarfars keppenda, prúðmennsku, framfara, vinnusemi og góðs liðsanda við val á liði ársins.
4. gr.
Allar deildir UMFG sem og íþróttafélög í Grindavík með samstarfssamning við Grindavíkurbæ hafa rétt á að tilnefna einn þjálfara sem kemur til greina sem þjálfari ársins. Einnig getur frístunda- og menningarnefnd tilnefnt þjálfara sem skarað hefur fram úr í íþróttum sem ekki er hægt að stunda sem keppnisgreinar í Grindavík og því utan deilda UMFG eða íþróttafélaga í Grindavík. Horfa skal til hugarfars þjálfara, prúðmennsku, framfara, áhuga og vinnusemi.
5.gr.
Þeir sem eru tilnefndir til kjörs á íþróttamanni og íþróttakonu Grindavíkur skulu hafa náð 16 ára aldri. Þó er heimilt að tilnefna ungling 14 – 16 ára sem keppir í flokki fullorðinna og er að ná það góðum árangri að hann teljist á meðal þeirra bestu í sinni íþróttagrein.
6.gr.
Tilnefningunum skal fylgja greinagerð ásamt mynd af viðkomandi íþróttamanni / íþróttakonu. Í greinagerðinni skal koma fram eftirfarandi:
- Afrek / keppni erlendis á árinu (félag /landslið ) í unglinga- eða fullorðinsflokki:
- Afrek / keppni á Íslandi í unglinga- eða fullorðinsflokki:
- Afrek / keppni í Grindavík í unglinga- eða fullorðinsflokki:
- Staðan yfir landið (og t.d. ef einhver unglingur er í háum styrkleikaflokki yfir landið í fullorðinsflokki )
- Umsögn um íþróttamanninn – afrek, karakter, stefna, o.s.frv.
7. gr.
Tilnefningum skal skila til sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar fyrir kl. 16 þann 30. nóvember ár hvert. Frístunda- og menningarnefnd Grindavíkurbæjar er heimilt að taka ákvörðun um annað fyrir 10. nóvember liggi rík ástæða að baki.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs skal taka tilnefnefningarnar saman og senda á kjörnefnd fyrir lok vinnudags annars virks dags desembermánaðar.
8.gr
Val á íþróttamanni og íþróttakonu Grindavíkur er í höndum 8 manna kjörnefndar. Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar hefur umsjón með kjörinu.
9. gr.
Atkvæði, samtals 176 stig, eru í höndum kjörnefndar. Kjörnefnd er skipuð fjórum fulltrúum úr samfélagsnefnd Grindavíkurbæjar og fjórum fulltrúum aðalstjórnar UMFG.
Nefndarmaður í kjörnefnd skal víkja sæti og kalla til varamann ef hann er eða hefur verið maki einstaklings sem er tilnefndur í kjörinu, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ættleiðingar.
Ef einstaklingur á sæti bæði í stjórn aðalstjórnar UMFG og samfélagsnefnd er heimilt að varamaður einstaklingsins í samfélagsnefnd greiði atkvæði.
Boða skal kjörnefnd til fundar með að lágmarki sjö sólarhringa fyrirvara fyrir 10. desmber ár hvert. Á fundinn skal jafnframt boða fulltrúa þeirra deilda/félaga sem eiga fulltrúa í kjöri með það að markmiði að kynna nánar afrek þeirra sem tilnefnd eru.
10. gr.
Við val á íþróttamanni og íþróttakonu Grindavíkur skulu þeir sem hafa rétt til að greiða atkvæði taka tillit til árangurs á árinu sem kjörið á við um. Einnig skal tillit tekið til reglusemi og ástundunar, prúðmennsku og framfara.
11.gr.
Á fundi kjörnefndar skal sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs dreifa kjörseðlum með nöfnum þeirra sem tilnefnd eru. Á kjörseðil skal rita tölurnar :
- 1, fyrir þann íþróttamann/íþróttakonu sem viðkomandi nefndarmaður velur í 1. sæti
- 2, fyrir þann íþróttamann/ íþróttakonu sem viðkomandi nefndarmaður velur í 2. sæti
- 3, fyrir þann íþróttamann/ íþróttakonu sem viðkomandi nefndarmaður velur í 3. sæti
Við talningu atkvæða skal 1. sæti gefa 10 stig, annað sæti 7 stig og þriðja sæti 5 stig.
Ef tveir eða fleiri einstaklingar verða jafnir ræður eftirfarandi röð manna:
- 1. Fleiri tilnefningar í fyrsta sæti
- 2. Fleiri tilnefningar í annað sæti
- 3. Fleiri tilnefningar í þriðja sæti
12.gr.
Útnefning á kjöri íþróttamanns og íþróttakonu Grindavíkur fer fram á Gamlársdag.
13. gr.
Veita skal sérstaka bikara til íþróttamanns og íþróttakonu Grindavíkur. Bikararnir eru farandbikarar og vinnast því aldrei til eignar. Bikararnir eru í vörslu verðlaunahafa fram að næsta kjöri. Grindavíkurbær afhendir einnig bikarhöfunum viðurkenningu til minningar um val þeirra.
14. gr.
Við sama tækifæri skal veita viðurkenningar til þess íþróttafólks sem hefur skarað fram úr í sínum íþróttagreinum á árinu, s.s. orðið íslands- og bikarmeistarar. Íþróttafólkið skal koma úr röðum UMFG eða íþróttafélaga í Grindavík sem eru aðilar að Íþróttabandalagi Suðurnesja. Einnig er frístunda- og menningarnefnd Grindavíkurbæjar heimilt að veita viðurkenningar því íþróttafólki sem er með lögheimili í Grindavík en eru í íþróttafélögum utan sveitarfélagsins og starfa innan vébanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.
15.gr.
Öllum deildum innan UMFG og íþróttafélögum í Grindavík með samstarfssamning við Grindavíkurbæ er heimilt að tilnefna einn ungling af hvoru kyni sem hlýtur svokölluð hvatningarverðlaun Grindavíkur. Verðlaunin skulu veitt því íþróttafólki sem er áhugasamt, með góða ástundun, sýnir góða hegðun innan vallar sem utan, góður félagi og telst vera góð fyrirmynd annarra unglinga.
Lágmarksaldur er 13 ára á árinu sem kjörið nær til, hámarksaldur er 16 ára á árinu.
Samþykkt á fundi bæjarráðs Grindavíkur 11. nóvember 2025