Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni

Sam­þykkt um starfs­kjör kjör­inna full­trúa hjá Grinda­vík­ur­bæ

Þóknun kjörinna fulltrúa og nefndarlaun.

Skv. 32. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og ákvæði 26. gr. Samþykkta um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar ákvarðar bæjarstjórn þóknun til kjörinna fulltrúa fyrir störf þeirra. Kjörnir fulltrúar í bæjarstjórn og bæjarráði, ásamt kjörnum fulltrúum í nefndum og starfshópum fá greidda þóknun sem hér segir:

1.       Föst mánaðarleg þóknun.

Föst mánaðarleg þóknun til kjörinna bæjarfulltrúa telst vera þóknun fyrir öll þau störf sem bæjarfulltrúar taka að sér á vegum bæjarstjórnar og vegna undirbúnings fyrir fundi í bæjarstjórn og bæjarráði. Föst mánaðarleg þóknun er einnig vegna funda sem viðkomandi bæjarfulltrúar sækja innan og utan sveitarfélagsins og ekki er greitt sérstaklega fyrir samkvæmt reglum um þóknun skv. 2. grein.

                                Forseti bæjarstjórnar                     214.159 kr.
                                Formaður bæjarráðs                      191.213 kr.
                                Aðrir bæjarfulltrúar                        145.322 kr.

2.       Greiðslur fyrir fundarsetu.

Bæjarfulltrúar fá sérstaka þóknun fyrir hvern setinn fund í bæjarstjórn og bæjarráði. Fulltrúar í fastanefndum eða starfshópum Grindavíkurbæjar fá sérstaka þóknun fyrir hvern setinn fund, skv. neðangreindu, enda hafi þeir verið skipaðir af bæjarstjórn sem fulltrúar Grindavíkurbæjar í viðkomandi nefnd og gert sé ráð fyrir fjárheimildum í fjárhagsáætlun hverju sinni.
Varamenn í bæjarstjórn, bæjarráði, fastanefndum eða starfshópum sem sitja heila fundi fá greitt á sama hátt og aðalmenn.
Varamenn sem taka sæti í bæjarstjórn eða bæjarráði í einstökum málum, þ.e. hluta fundar, fá greidda þóknun fyrir setinn fund, óháð fjölda mála sem þeir taka þátt í á fundinum.

Bæjarstjórn
Forseti                                                                57.364 kr.
Aðrir bæjarfulltrúar                                       42.067 kr.
Varabæjarfulltrúar, hluti fundar                11.000 kr.           

Bæjarráð
Formaður                                                           57.364 kr.
Aðrir bæjarráðsfulltrúar                               42.067 kr.
Varabæjarfulltrúar, hluti fundar                11.000 kr.

Fastanefndir og starfshópar
Formaður                                                           49.000 kr.
Aðrir nefndarmenn                                       34.000 kr.

Ungmennaráð
Formaður                                                          24.500 kr.
Aðrir nefndarmenn                                       17.000 kr.

Bæjarstjóra er heimilt að samþykkja að fyrir aðra fundi kjörinna nefndarfulltrúa sé greitt sérstaklega. Greiðslur samkvæmt þessu skulu vera hálf nefndarlaun ef fundur er styttri en hálfur dagur en heil nefndalaun fyrir fund sem er meira en hálfur dagur.
Bæjarfulltrúar fá greitt fyrir setu á fundum SSS og SÍS á sama máta, hálf almenn nefndarlaun bæjarfulltrúa ef fundur er styttri en hálfur dagur en heil almenn nefndarlaun ef fundur er meira en hálfur dagur.
Umsókn um slíka fundarsetu og greiðslu þóknunar fyrir fundi skal samþykkt fyrirfram af bæjarstjóra.

Greiðslur til bæjarfulltrúa vegna fundarsetu í bæjarráði og bæjarstjórn og til nefndarmanna vegna setu í innviða- eða samfélagsnefnd  skulu vera mánaðarlega.

Af tekjum kjörinna fulltrúa skv. 1. og 2. grein skal greiða í lífeyrissjóð eins og um almennan launþega væri að ræða.

3.       Ferðakostnaður og uppihald.

Vegna ferða á vegum sveitarfélagsins utan þess skal, ef þess er nokkur kostur, nýta bílaleigusamning Grindavíkurbæjar. Ef því er ekki viðkomið skal akstur á eigin bifreið endurgreiddur samkvæmt akstursdagbók, skýrslu og/eða framlögðum reikningum og skal tilefni tilgreint. Miða skal við akstursgjald ríkisstarfsmanna. Leitast skal við að gæta hagkvæmni við skipulag ferða, t.d. með því að sameinast í bíla eftir aðstæðum. Endurgreiðslubeiðni skal skilað til bæjarstjóra.

Kostnaður vegna uppihalds og gistingar vegna starfa á vegum sveitarfélagsins utan þess skal greiddur skv. framlögðum reikningi, enda hafi viðkomandi lagt út fyrir þeim kostnaði. Bókanir á flugferðum og gistingu skulu fara fram í gegnum bæjarstjóra.

4.       Annað.

Í upphafi kjörtímabils skal hver aðalbæjarfulltrúi og formenn fastanefnda fá styrk allt að 100.000 kr. til tækjakaupa vegna rafrænna fundargagna. Um frekari styrki til tækjakaupa er ekki að ræða.

Forseti bæjarstjórnar og formaður bæjarráðs skulu njóta sömu kjara hvað varðar notkun farsíma og sviðsstjórar Grindavíkurbæjar.

Þær fjárhæðir sem að framan greinir skulu endurreiknast 1. janúar og 1. júlí ár hvert samkvæmt breytingum á launavísitölu hverju sinni, miðað við grunnvísitölu 689,3 stig, í fyrsta sinn þann 1. janúar 2020.

Samþykkt þessi gildir frá og með 1. janúar 2027.

Samþykkt í bæjarstjórn Grindavíkur þann 30. september 2026

Samþykkt um starfskjör kjörinna fulltrúa hjá Grindavíkurbæ - Grindavíkurbær