Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Snjó­mokst­ur

Snjómokstri í Grindavík er forgangsraðað þannig að helstu samgönguleiðir haldist opnar. Hér má sjá hvernig mokstri er háttað, hvaða götur eru í forgangi og hvað fellur ekki undir þjónustu bæjarins.

Forgangur í snjómokstri

Þegar snjóar er fyrst og fremst unnið að því að halda helstu samgönguleiðum opnum.

Í forgangi eru meðal annars:

  • leiðir að Grindavíkurvegi
  • skólar og leikskólar
  • slökkviliðsstöð
  • heilbrigðisstofnanir
  • leið að Grindavíkurhöfn
  • ákveðinn öryggishringur um bæinn sem nýtist flestum íbúum

Þegar þessum leiðum hefur verið sinnt er farið í mokstur í íbúðarhverfum.

Almenningsbílastæði

Almenningsbílastæði við stofnanir sveitarfélagsins eru mokuð samhliða snjómokstri þar sem sveitarfélagið ber kostnað af gerð þeirra.

Heimkeyrslur og plön

Snjómokstur á heimkeyrslum, lóðum og plönum við íbúðarhús og fyrirtæki er ekki á vegum Grindavíkurbæjar.

Mokstur fyrir eldri borgara og fólk með fötlun

Í sérstökum tilvikum getur félagsþjónusta óskað eftir snjómokstri fyrir einstaklinga sem vegna fötlunar eða veikinda geta ekki séð um mokstur sjálfir.

Forgangur snjómoksturs

Grindavíkurbær hefur gefið út kort þar sem sjá má forgangsröðun í snjómokstri: