Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Reglur um styrki vegna íþrótta­af­reka

1. grein

Grindavíkurbær veitir styrki vegna íþróttaafreka til keppenda, sjálfboðaliða, starfsfólks og þjálfara með lögheimili í Grindavík, sem og íþróttafélögum og/eða einstökum deildum félaga. Markmið styrkjanna er:

  • Að styrkja íþróttafélög í Grindavík til að halda uppi öflugu íþróttastarfi.
  • Að veita einstöku afreksfólki með lögheimili í Grindavík og keppir fyrir hönd íþróttafélaga í Grindavík sem aðilar eru að Íþróttabandalagi Suðurnesja, viðurkenningu og fjárstuðning til að auðvelda þeim æfingar og þáttöku í mikilvægum keppnum.
  • Að styrkja þjálfara, sjálfboðaliða og starfsfólk íþróttafélaga, sem starfar með ungu íþróttafólki, til þess að leita sér aukinnar þekkingar og/eða réttinda með námskeiðum eða annarskonar fræðslu.

2. grein

Umsóknum skal skila skriflega á þar til gerðu eyðublaði. Þar skal koma skýrt fram um hvers konar styrk er sótt og hvert verkefnið er sem sótt er um styrk til. Tilgreina skal og sundurliða fyrirhugaðan kostnað við verkefnið. Frístunda- og menningarnefnd skal svara öllum umsóknum sem berast.

3. grein

Styrkir eru veittir til eftirfarandi verkefna:

  • Landsliðsstyrkir
  • Afreksstyrkir
  • Fræðslustyrkir
  • Stuðningsstyrkir

4. grein

Bæjarstjórn ákveður upphæð styrkja í fjárhagsáætlun ár hvert.

5. grein

Umsækjendur skulu að lágmarki vera á 12. aldursári og að hámarki 25. aldursári. Landsliðsfólk á rétt á styrk ef það þarf sjálft að greiða hluta af flugfari eða gistingu og/eða ef það hefur orðið fyrir vinnutapi vegna landsliðsverkefna.

Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs er heimilt í samráði við formann frístunda- og menningarnefndar að afgreiða umsóknir um landsliðsstyrki. Frístunda- og menningarnefnd skal gerð grein fyrir úthlutun styrkja.

6. grein

Afreksstyrkir eru veittir til félaga og/eða einstaklinga sem unnið hafa Íslands-, bikar-, deildar- eða fyrirtækjameistaratitil í meistaraflokki. Jafnframt eru veittir styrkir til félaga sem vinna sig upp um deild í meistaraflokki. Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs er heimilt í samráði við formann frístunda- og menningarnefndar að afgreiða umsóknir um afreksstyrki. Frístunda- og menningarnefnd skal gerð grein fyrir úthlutun styrkja.

7. grein

Fræðslustyrkir eru veittir til þjálfara, sjálfboðaliða og starfsfólk íþróttafélaga, sem starfað hafa með ungu íþróttafólki í Grindavík í að lágmarki 3 ár og stefna að því að gera það áfram, til þess að leita sér aukinnar þekkingar og/eða réttinda með námskeiðum eða annarskonar fræðslu. Styrkirnir eru veittir til einstaklinga eða hópa.

Frístunda- og menningarnefnd Grindavíkurbæjar skal auglýsa eftir umsóknum um fræðslustyrki í janúar ár hvert. Umsóknarfrestur skal vera til 15. febrúar.

Frístunda- og menningarnefnd tekur umsóknir fyrir á fundum sínum í mars. Frístunda- og menningarnefnd er jafnframt heimilt að veita styrki og viðurkenningar án umsókna telji nefndin tilefni til og skal þá röstyðja það sérstaklega.

8. grein

Frístunda- og menningarnefnd er heimilt að veita stuðningsstyrki til keppenda, yngri en 18 ára, sem taka þátt í æfingaferðum, mótum eða landsliðsverkefnum erlendis og þurfa á einhvern hátt á aðstoð að halda, t.d. vegna fötlunar. Styrknum er ætlað að standa straum af kostnaði vegna þjálfara, fararstjóra eða fylgdarmanns. Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs er heimilt í samráði við formann frístunda- og menningarnefndar að afgreiða umsóknir um stuðningsstyrki. Frístunda- og menningarnefnd skal gerð grein fyrir úthlutun styrkja.

9. grein

Hver umsækjandi getur alla jafna hlotið styrk tvisvar sinnum á ári. Séu sérstakar ástæður fyrir hendi er frístunda- og menningarnefnd heimilt að úthluta styrkjum til sama styrkþega oftar og skal nefndin þá rökstyðja ákvörðun sína sérstaklega.

10. grein

Styrkir vegna íþróttaafreka eru greiddir út þegar umsókn hefur verið afgreidd. Styrkþegi skal skila staðfestingu á lokum verkefnis og kostnaði við það til sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar. Grindavíkurbær getur farið fram á endurgreiðslu sé styrkur ekki nýttur til þess sem fram kemur í umsókn.

11. grein

Allir þeir íþróttamenn sem þiggja styrk úr Afrekssjóði skulu hlíta þeim reglum sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands setur um lyfjanotkun og lyfjaeftirlit, svo og þeim almennu siða- og agareglum sem gilda um framkomu íþróttamanna innan vallar sem utan. Gerist styrkþegi brotlegur gegn þessum reglum getur stjórn sjóðsins stöðvað greiðslur til styrkþega og jafnvel krafist endurgreiðslu styrksins.

Samþykkt á 86. fundi frístunda- og menningarnefndar Grindavíkurbæjar 4. september 2019

Samþykkt á 1525. fundi bæjarráðs Grindavíkur 10. september 2019