Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Reglur um Heið­urs­vegg íþrótt­anna í Grinda­vík

1. Markmið

Markmið Heiðursveggjar íþróttanna í Grindavík er að:

  • heiðra einstaklinga sem hafa skarað fram úr í íþróttastarfi fyrir hönd Grindavíkur,
  • varðveita sögu og arfleifð íþróttastarfs í sveitarfélaginu,
  • varpa ljósi á fyrirmyndir fyrir börn og ungmenni,
  • efla vitund um mikilvægi íþróttastarfs í samfélaginu.

2. Samstarfsaðilar

Heiðursveggurinn er samstarfsverkefni Grindavíkurbæjar, Ungmennafélags Grindavíkur, Golfklúbbs Grindavíkur og Hestamannafélagsins Brimfaxa.

Samstarfsaðilar verkefnisins bera sameiginlega ábyrgð á þróun og varðveislu Heiðursveggjarins.

3. Heiðursráð

Heiðursráð fer með umsjón Heiðursveggjarins í umboði samstarfsaðila og gerir tillögur um þá einstaklinga sem teknir eru inn á vegginn.

Í Heiðursráði eiga sæti:

  • tveir fulltrúar Grindavíkurbæjar, tilnefndir af bæjarstjórn.
  • tveir fulltrúar Ungmennafélags Grindavíkur
  • einn fulltrúi Hestamannafélagsins Brimfaxa
  • einn fulltrúi Golfklúbbs Grindavíkur

Við skipan í ráðið skal þess gætt að kynjasjónarmið séu höfð til hliðsjónar.

Heiðursráð annast auglýsingu eftir tilnefningum og ber ábyrgð á móttöku þeirra. Ráðið skal tryggja að kallað sé eftir tillögum frá samstarfsaðilum Heiðursveggjarins innan hæfilegs frests fyrir hverja innritun.

Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar er starfsmaður ráðsins og annast m.a. fundarritun og umsýslu.

4. Forsendur inntöku

Við val á einstaklingum á Heiðursvegg íþróttanna í Grindavík skal horft til framúrskarandi árangurs í íþróttum sem fulltrúi íþróttafélaganna í Grindavík eða sem Grindavíkingur.

Jafnframt skal heimilt að taka til greina verulegt framlag til uppbyggingar og þróunar íþróttastarfs í bænum, hvort sem um er að ræða framlag sem iðkandi, þjálfari, stjórnandi eða með frumkvæði og forystu í sjálfboðastarfi.

Við mat á tilnefningum skal þannig leggja áherslu á raunveruleg tengsl við íþróttastarf í Grindavík og það framlag sem viðkomandi hefur veitt til eflingar þess, innan vallar sem utan.

5. Skilyrði fyrir tilnefningu

Að jafnaði skal einungis tilnefna einstaklinga sem hafa lokið keppnisferli sínum í viðkomandi íþrótt fyrir a.m.k. fimm árum eða náð 50 ára aldri.

Heiðursráð getur í undantekningartilvikum vikið frá framangreindu ef sérstaklega stendur á, svo sem þegar um er að ræða framlag sem ekki tengist beint keppnisferli viðkomandi.

6. Tilnefningar og ákvörðun

Samstarfsaðilar geta lagt fram tilnefningar til Heiðursráðs.

Heiðursráð fer yfir innsendar tilnefningar og tekur ákvörðun um þá einstaklinga sem teknir eru inn á Heiðursvegg íþróttanna í Grindavík á grundvelli reglna þessara.

Við hverja innritun er heimilt að taka að hámarki þrjá einstaklinga inn á Heiðursvegginn.

7. Viðurkenningar og varðveisla

Einstaklingar sem teknir eru inn á Heiðursvegg íþróttanna í Grindavík:

  • hljóta viðurkenningu því til staðfestingar
  • skulu eiga nafn sitt og helstu afrek skráð á Heiðursveggnum
  • skulu varðveittar upplýsingar um afrek þeirra í samræmi við ákvörðun samstarfsaðila.

Heiðursveggurinn skal staðsettur í íþróttamannvirki í Grindavík eða öðrum viðeigandi stað þar sem almenningur hefur aðgengi.

8. Breytingar á reglum

Breytingar á reglunum þessum þarfnast samþykkis allra samstarfsaðila, þ.e. Grindavíkurbæjar, Ungmennafélags Grindavíkur, Golfklúbbs Grindavíkur og Hestamannafélagsins Brimfaxa.

Samþykkt í bæjarráði Grindavíkurbæjar 24. mars 2026

Reglur um Heiðursvegg íþróttanna í Grindavík - Grindavíkurbær