Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Raf­ræn­ir reikn­ingar

Grindavíkurbær tekur eingöngu við rafrænum reikningum sem sendir eru í gegnum viðurkenndan skeytamiðlara. Hér finnur þú allar upplýsingar sem þarf til að senda rafrænan reikning og tryggja rétta og hraða afgreiðslu.

Hvernig sendi ég rafrænan reikning?

Reikningar skulu sendir:

  • Í gegnum skeytamiðlara (Peppol / XML)
  • Í samræmi við tækniforskriftir Staðlaráðs Íslands
  • Beint úr bókhalds- eða sölukerfi seljanda þegar mögulegt er

Ef kerfi er ekki tengt skeytamiðlara er hægt að nýta þjónustu viðurkenndra miðlara sem bjóða upp á handvirka skráningu rafrænna reikninga.

Reikningar skulu ekki sendir á pappír eða í tölvupósti samhliða rafrænum reikningi.

Kennitala og móttakandi

Reikning skal stíla á rétta kennitölu og rekstrareiningu Grindavíkurbæjar samkvæmt samningi eða pöntun.

Eftirfarandi þarf að koma skýrt fram:

  • Kennitala og heiti viðeigandi stofnunar
  • Númer kostnaðarstaðar eða deildar (ef uppgefið)
  • Númer beiðni eða verknúmer (ef við á)
  • Nafn þess sem pantar (ef uppgefið)

Ef upplýsingar vantar getur það tafið afgreiðslu og greiðslu reiknings.

Innihald reiknings

Reikningur þarf að uppfylla lögbundnar kröfur og innihalda:

  • Sundurliðun á vöru og/eða þjónustu
  • Magn, einingu og einingarverð
  • Heildarfjárhæð og virðisaukaskatt
  • Allar aðrar lögbundnar upplýsingar

Verð skal innifela allan kostnað. Ekki skal bæta við seðilgjöldum, þjónustugjöldum eða öðrum gjöldum sem ekki tengjast beint seldri vöru eða þjónustu.

Fylgigögn

Ef senda þarf fylgigögn, svo sem:

  • Beiðnir
  • Tíma- eða verkskýrslur
  • Samninga eða önnur staðfestingargögn

þá skulu þau fylgja sem viðhengi (PDF) með rafrænum reikningi.

Hlekkur (URL) í reikningi telst ekki fullnægjandi afhending fylgigagna.

Greiðslufrestur og meðferð reikninga

  • Reikningar skulu sendir samdægurs.
  • Almennur greiðslufrestur er 30 dagar nema annað sé sérstaklega samið.
  • Allir reikningar fara í rafrænt samþykkisferli áður en greitt er.

Reikningur sem ekki er rétt stílaður eða vantar nauðsynlegar upplýsingar getur tafist í afgreiðslu.

Fyrirspurnir

Fyrirspurnir um stöðu reikninga og framkvæmd rafrænnar sendingar má senda á bokhald@grindavik.is