Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Íþrótta­styrk­ir

Grindavíkurbær veitir styrki til íþróttafólks vegna afreka í íþróttum. Við erum stolt af þeim árangri sem íþróttafólkið okkar nær og styðjum við metnað þeirra og áframhaldandi þátttöku í íþróttastarfi.

Grindavíkurbær veitir eftirfarandi styrki vegna íþróttaafreka:

  • Endurgreiðsla vegna flugfars eða gistingar: allt að 25.000 kr.
  • Endurgreiðsla vegna vinnutaps: allt að 15.000 kr.
  • Fræðslustyrkur: allt að 90.000 kr.
  • Stuðningsstyrkur: allt að 45.000 kr.
  • Íslandsmeistartitill í hópíþrótt: 450.000 kr.
  • Bikarmeistaratitill í hópíþrótt: 315.000 kr.
  • Fyrirtækjameistaratitill í hópíþrótt: 90.000 kr.
  • Deildarmeistaratitill í hópíþrótt (sem ekki er íslandsmeistaratitill): 90.000 kr.
  • Lið í hópíþrótt sem vinnur sig upp um deild: 225.000 kr.
  • Íslandsmeistartitill í einstaklingsgrein í meistarflokki (styrkur til deildar/félags): 45.000 kr.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglurnar og vanda til verka við gerð umsókna.

Athugið að skila þarf eftirfarandi gögnum með umsókn:

  • Fjárhagsáætlun
  • Upplýsingar um landsliðsverkefni, mót, námskeið eða annað sem styður við umsóknina

Sækja um styrk í þjónustugátt Grindavíkurbæjar