Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Hús­næði

Grindavíkurbær veitir stuðning til einstaklinga og fjölskyldna sem eiga erfitt með að sjá sér fyrir húsnæði á eigin vegum.
Hér finnur þú upplýsingar um félagslegt leiguhúsnæði, sérstakan húsnæðisstuðning og íbúðir fyrir eldri borgara.

Félagslegt leiguhúsnæði

Félagslegt leiguhúsnæði er ætlað einstaklingum og fjölskyldum sem ekki eru fær um að sjá sér fyrir húsnæði sökum félagslegra aðstæðna, þungrar framfærslubyrði og/eða lágra tekna sem gera fólki erfitt fyrir á húsnæðismarkaði.

Úthlutun fer fram samkvæmt reglum Grindavíkurbæjar og byggir á mati á þörf og aðstæðum umsækjenda.

Sérstakur húsnæðisstuðningur

Sérstakur húsnæðisstuðningur er ætlaður þeim sem eru með íþyngjandi húsnæðiskostnað eða geta ekki séð sér fyrir húsnæði vegna lágra tekna, mikillar framfærslubyrði eða félagslegra aðstæðna.

Stuðningurinn getur einnig náð til foreldra eða forsjáraðila barna á aldrinum 15–17 ára sem leigja herbergi á heimavist eða námsgörðum vegna náms barna fjarri lögheimili.

Íbúðir fyrir eldri borgara

Grindavíkurbær leigir út íbúðir fyrir eldri borgara í Víðihlíð. Íbúðirnar eru ætlaðar fólki sem vill búa sjálfstætt í öruggu og aðgengilegu umhverfi, með nálægð við þjónustu eftir því sem við á.

Umsóknir og upplýsingar

Sótt er um félagslegt leiguhúsnæði og sérstakan húsnæðisstuðning í gegnum þjónustugátt Grindavíkur.
Einnig er hægt að leita upplýsinga hjá þjónustufulltrúum.

Fyrirspurnir er hægt að senda á grindavik@grindavik.is. Auk þess er hægt að hringja í síma 420 1100 á opnunartíma þjónustuvers.

Tenglar