Heiðursviðurkenningar
Grindvíkingar hafa heiðrað íbúa sem hafa lagt samfélaginu lið af óeigingirni og einlægum vilja til að gera góðan bæ enn betri. Viðurkenningarnar eru okkar leið til að segja takk!

Heiðursborgarar Grindavíkur
Heiðursborgari er æðsta viðurkenning sem Grindavíkurbær veitir einstaklingi sem hefur unnið ómetanlegt starf í þágu samfélagsins. Viðurkenningin er veitt til þeirra sem hafa haft djúpstæð áhrif á samfélagið og orðið Grindvíkingum öllum hvatning og innblástur til góðra verka. Eftirfarandi eru heiðursborgarar Grindavíkur:
- Guðbergur Bergsson, rithöfundur (2004)
- Svavar Árnason, fyrrverandi oddviti Grindavíkurhrepps (1994)
Heiðursviðurkenningar bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar hefur á kaupstaðarafmæli sveitarfélagsins veitt viðurkenningar til Grindvíkinga sem hafa skilað hafa umfangsmiklu og mikilvægu framlagi til samfélagsins og verið öðrum til fyrirmyndar. Eftirfarandi hafa hlotið hieðursviðurkenningu bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar:
- Birna Óladóttir fyrir félagsstörf (2014)
- Bogi Hallgrímsson fyrir störf í þágu bæjarins og íþróttalífs (2014)
- Edvard Júlíusson fyrir störf í þágu atvinnulífs og bæjarins (2014)
- Jóhanna Sigurðardóttir fyrir félags- og menningarstörf (2014)
- Jóhannes Haraldsson fyrir störf í þágu íþróttalífs (2014)
- Petra Guðrún Stefánsdóttir fyrir störf að félags- og mannúðarmálum (2014)
- Aðalgeir Georg Daði Johansen fyrir störf í þágu menningarmála í Grindavík (2024)
- Birna Bjarnadóttir fyrir störf í þágu mannúðar- og menningarmála í Grindavík (2024)
- Björn Birgisson fyrir störf í þágu menningarmála í Grindavík (2024)
- Guðfinna Bogadóttir fyrir störf í þágu mannúðar- og menningarmála í Grindavík (2024)
- Gunnar Tómasson fyrir framúrskarandi störf í þágu atvinnu-, félags- og menningarmála í Grindavík (2024)
- Jónas Þórhallsson fyrir framúrskarandi störf í þágu íþróttamála í Grindavík (2024)
- Kristín Elísabet Pálsdóttir fyrir störf í þágu barna- og menningarmála í Grindavík (2024)
- Stefanía Ólafsdóttir fyrir störf í þágu fræðslu- og uppeldismála í Grindavík (2024)