Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni

Heilsu­vernd skóla­barna

Heilsuvernd skólabarna hefur það að markmiði að efla heilsu og vellíðan nemenda. Þjónustan felur m.a. í sér heilbrigðisfræðslu, forvarnir, skimanir og bólusetningar.

Hjúkrunarfræðingur

Hjúkrunarfræðingur í skólum Grindavíkurbæjar er Ásdís María Grétarsdóttir. Hún er ekki með fasta viðveru vegna fjölda nemenda, en foreldrar og forsjáraðilar geta haft samband við hana með tölvupósti gegnum netfangið grindavikurskoli@hss.is.

Um heilsuvernd skólabarna

Heilsuvernd skólabarna er hluti af heilsugæslunni og tekur við af ung- og smábarnavernd.

Hjúkrunarfræðingur vinnur náið með foreldrum, forsjáraðilum, starfsfólki skólans og öðrum sem koma að velferð nemenda. Farið er með allar persónuupplýsingar sem trúnaðarmál og þjónustan er skráð í rafræna sjúkraskrá heilsugæslunnar.

Starfið byggir á leiðbeiningum Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu.

Nánari upplýsingar má finna á Heilsuveru undir heitinu Heilsuvernd grunnskólabarna.

Veikindi og slys á skólatíma

Ef nemandi veikist eða slasast á skólatíma veitir starfsfólk skólans fyrstu hjálp eftir þörfum.

Þurfi nemandi að fara á heilsugæslu eða slysadeild er það á ábyrgð foreldra eða forsjáraðila að fylgja barninu.

Mikilvægt er að skólinn hafi rétt símanúmer foreldra og forsjáraðila svo hægt sé að ná í þau á skólatíma.

Heilsuvernd skólabarna sinnir ekki óhöppum eða slysum sem verða utan skólatíma.

Börn með langvinna sjúkdóma eða fötlun

Foreldrar og forsjáraðilar barna með fötlun, langvinna sjúkdóma eða alvarleg heilsufarsvandamál eru hvattir til að upplýsa hjúkrunarfræðing skólans um þarfir barnsins.

Þetta á m.a. við um börn með sykursýki, alvarlegt ofnæmi, flogaveiki eða blæðingarsjúkdóma.

Hjúkrunarfræðingur vinnur með foreldrum og starfsfólki skólans að því að tryggja viðeigandi umönnun og stuðning svo barninu líði vel og það geti tekið þátt í skólastarfinu.

Heilsuvernd skólabarna - Grindavíkurbær