Skipulagsnefnd - 112. fundur
- 09.01.2023
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 18:45
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 112
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Lilja Ósk Sigmarsdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaraformaður
- Hrannar Jón Emilssonaðalmaður
- Steinberg Reynissonaðalmaður
- Unnar Á. Magnússonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Víkurbraut 25 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,
Fulltrúar Milu mættu til fundarins til að ræða byggingarleyfisumsóknina og fjarskiptamál fyrirtækisins í Grindavík. Þá sátu Helga Dís Jakobsdóttir og Hallfríður Hólmgrímsdóttir fundinn undir dagskrárliðnum.
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að vinna málið aftur meðal annars til þess að skoða aðra staðsetningu t.d. nær hafnarsvæðinu.2. Umsókn um framkvæmdaleyfi - sjóvarnir 2023
Vegagerðin óskar eftir framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda við sjóvarnir í Grindavík fyrir eftirfarandi verk:
- Sjóvörn sunnan Grindavíkurhafnar, styrking og hækkun.
- Sjóvörn við Litlubót, endurbygging og hækkun.
- Sjóvörn við golfvöll, styrking og hækkun.
- Sjóvörn vestan Gerðistangi, framlenging.
Framkvæmdin er í samræmi við Aðalskipulag Grindavíkur. Skiplagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdarleyfisins með fyrirvara um jákvæða umsögn umhverfisstofnunar.3. Deiliskipulag íþróttasvæðis
Staðan á deiliskipulaginu lögð fram til umræðu.
Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram. Gert er ráð fyrir að deiliskipulagið verði kynnt á íbúafundi í febrúar.4. Hönnun sundlaugarsvæðis og aðliggjandi mannvirkja
Staðan á frumhönnunin lögð fram til upplýsinga. Gert er ráð fyrir að verkefnið verði kynnt fyrir íbúum í febrúar.