Skipulagsnefnd - 84. fundur
- 22.03.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 19:10
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 84
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Unnar Á Magnússonvaramaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Í upphafi fundar samþykkir nefndin að Sigurður Óli Þórleifsson sitji fundinn sem áheyrnarfulltrúi.
1. Erindi vegna nýtingu slóða í Grindavík
Fulltrúar fyrirtækisins Fjórhjólaævintýri ehf. sátu fundinn undir dagskrárliðnum.
Sviðsstjóra falið að kanna vegskrána hjá Vegagerðinni.2. Svæði til skógæktar í Grindavík
Pálmar Guðmundsson frá Skógræktarfélagi Grindavíkur sat fundinn undir dagskrárliðnum.
Sviðsstjóra falið að funda með Skógræktarfélagi Grindavíkur og stjórn landeigandafélags Járngerðarstaða og Hópstorfu til að finna svæði til skógræktar við Þorbjörn.3. Breyting á deiliskipulagi við Víðihlíð
Breytingar á deiliskipulagstillögu við Víðihlíð lagðar fram.
Skipulagsnefnd samþykkir að hækka hús á deiliskipulagstillögu nr. 1,2,3 og 4 um eina hæð með bílakjallara undir og milli húsa nr. 1 og 4. Samþykkt að hús sem mun hýsa félagsaðstöðu eldri borgara verði 2 hæðir. Sviðsstjóra falið að skoða hvort það sé fýsilegt að setja bílakjallara undir hús nr. 2 og 3.4. Breyting á deiliskipulagi iðnaðar- og orkuvinnslusvæðis á Reykjanesi
HS Orka óskar eftir að breyta deiliskipulagi iðnaðar- og orkuvinnslusvæðis á Reykjanesi. Tilgangur breytingar er að gera ráð fyrir nýjum sjótökuholum. HS Orka vinnur jafnframt að matsskyldufyrirspurn til Skipulagsstofnunar vegna þessara framkvæmda. Tillagan var auglýst. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna og vísar afgreiðslu hennar til bæjarstjórnar.5. Brimketill: Útsýnispallur, áfangi 2
Reykjanes Geopark fékk úthlutað kr. 15.000.000 styrk úr framkvæmdasjóð ferðamannastaða til að stækka núverandi útsýnispall við Brimketil á Reykjanesi. Upphafleg hönnun útsýnispallsins gerði ráð fyrir öðrum samtengdum palli með setbekk og staðsettur nær sjálfum Brimkatli.
Lagt fram.6. Kæra- framkvæmdaleyfi suðurnesjalína 2
Kæra vegna framkvæmdaleyfis fyrir Suðurnesjalínu 2 lögð fram til kynningar. Lögfræðingur skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir dagskrárliðnum. Skipulagsnefnd vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
7. Þórkötlustaðir Miðbær - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um byggingarleyfi fyrir því að endurbyggja húsið við Þórkötlustaði - Miðbæ í núverandi stærð og setja í upprunalega glugga og bæta við nýjum í sama stíl.
Grenndarkynning hefur farið fram. Engar athugsemdir eru gerðar.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Í samræmi við 6 gr. samþykktar um skipulagsnefnd í Grindavík þá er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Byggingarleyfi er gefið út þegar fullnægjandi gögn hafa borist skipulags- og umhverfissviði Grindavíkurbæjar.8. Leynisbrún 10 - umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um byggingarleyfi fyrir byggingu gróðurhúss við Leynisbrún 10.
Grenndarkynning hefur farið fram. Engar athugsemdir eru gerðar.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Í samræmi við 6 gr. samþykktar um skipulagsnefnd í Grindavík þá er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Byggingarleyfi er gefið út þegar fullnægjandi gögn hafa borist skipulags- og umhverfissviði Grindavíkurbæjar.9. Staðarsund 7 - Umsókn um byggingarleyfi
Grenndarkynningu á byggingarleyfi byggingarleyfis TGraf við Staðarsund 7 er lokið, ein athugasemd barst. Byggingarfulltrúi og lögfræðingur skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir dagskrárliðnum.
Skipulagsnefnd hefur tekið til skoðunar athugasemd sem barst eftir grenndarkynningu.
Tekið var til greina hluta athugasemdarinnar. Rýmisnúmer annarra eignarhluta en umsækjanda munu halda núverandi númerum. Eignarhaldstafla leiðréttist í samræmi við það. Eftir breytinguna verða eignarhlutar 6 talsins með sameign. Athugsemd varðandi stærð botnflatar byggist á misskilning. Athugsemdaraðili fær nánari útskýringar.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin og vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Byggingarleyfi er gefið út þegar fullnægjandi gögn hafa borist skipulags- og umhverfissviði Grindavíkurbæjar.10. Kynning á breytingum á auglýsing um verndarsvæði á Reykjanesskaga - háhiti Brennisteinsfjallasvæðis í verndarflokki verndar- og orkunýtingaráætlun
Kynning á breytingum á auglýsingu um verndarsvæði á Reykjanesskaga - háhiti Brennisteinsfjallasvæðis í verndarflokki verndar- og orkunýtingaráætlun lögð fram til umsagnar eða athugasemda.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við auglýsinguna og vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.11. Suðurstrandarvegur - hugmyndir um nýja legu norðan við Grindavík
Hugmyndir um nýja legu á Suðurstrandarvegi norðan við þéttbýli Grindavíkur tekin til umræðu.
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að þrýsta á að framkvæmdum við Suðurstrandarveg norðan Grindavíkur verði hraðað eins og kostur er.12. Ný brunavarnaáætlun fyrir slökkvilið Grindavíkur
Brunavarnaráætlun slökkviliðs Grindavíkur 2021-2025 lögð fram til kynningar.