Skipulagsnefnd - 126. fundur
- 02.10.2023
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 18:35
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 126
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Lilja Ósk Sigmarsdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaraformaður
- Steinberg Reynissonaðalmaður
- Unnar Á. Magnússonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Laufið - kynning
Bæjarfulltrúarnir Birgitta H. Ramsay Káradóttir, Hjálmar Hallgrímsson og Helga Dís Jakobsdóttir ásamt Fannari Jónassyni, bæjarstjóra, sátu fundinn undir dagskrárliðnum. Magnús Jónatansson frá Laufinu ehf. mæti til fundarins til að kynna Laufið.
Laufið býður upp á stafrænan vettvang sem stuðlar að sjálfbærri þróun íslensks atvinnulífs.
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.2. Svansvottun - kynning
Bæjarfulltrúarnir Birgitta H. Ramsay Káradóttir, Hjálmar Hallgrímsson og Helga Dís Jakobsdóttir ásamt Fannari Jónassyni, bæjarstjóra, sátu fundinn undir dagskrárliðnum. Berþóra Kvaran frá Svaninum mæti til fundarins til að kynna
Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem var komið á fót af Norrænu ráðherranefndinni árið 1989. Meginmarkmið Svansins er að draga úr umhverfisáhrifum af vörum eða þjónustu og auðvelda neytendum að velja umhverfisvænni kosti.
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.3. Innviðir fyrir orkuskipti
Bæjarfulltrúarnir Birgitta H. Ramsay Káradóttir, Hjálmar Hallgrímsson og Helga Dís Jakobsdóttir ásamt Fannari Jónassyni, bæjarstjóra, sátu fundinn undir dagskrárliðnum.
Bréf frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu lagt fram þar sem sveitarfélögum er bent á að byggja þurfi hratt upp hleðsluinnviði og dreifi- og flutningskerfi raforku vegna orkuskipta í samgöngum á landi.4. Hraðhleðslustöðvar í Grindavík - beiðni frá HS orku
Bæjarfulltrúarnir Birgitta H. Ramsay Káradóttir, Hjálmar Hallgrímsson og Helga Dís Jakobsdóttir ásamt Fannari Jónassyni, bæjarstjóra, sátu fundinn undir dagskrárliðnum.
HS orka og InstaVolt hafa mikinn áhuga á að setja niður 4 hleðslustöðvar á bílastæðið við Íþróttahúsið (HS orku höllina).
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að vinna málið áfram með HS orku og InstaVolt og afgreiða málið með bæjarráði.5. Túngata 1 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,
Umsókn um byggingarleyfi vegna Túngötu 1 lögð fram í kjölfar grenndarkynningar, engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar. Sviðsstjóra falið að afla frekari gagna.6. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 77
Fundargerð afgreiðslunefndar byggingar- og skipulagsmála nr. 77 lögð fram.