Skipulagsnefnd - 110. fundur
- 05.12.2022
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 17:45
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 110
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Lilja Ósk Sigmarsdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaraformaður
- Hrannar Jón Emilssonaðalmaður
- Steinberg Reynissonaðalmaður
- Unnar Á. Magnússonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Umferðaröryggismál í Grindavík
Undir dagskrárliðnum sátu þau Bergsteinn Ólafsson og Eydís Ármannsdóttir umferðaröryggisfulltrúar skipulagsnefnar.
Drög að stefnu Grindavíkurbæjar í umferðaröryggismálum lögð fram eftir umsagnir frá Lögreglunni á Suðurnesjum, Samgöngustofu og Vegagerðinni.
Eftirfarandi bætt við drögin:
- Hraði á Ránargötu neðan Mánagötu verður 50 km/klst
- Þungatakmarkanir verði settar á Víkurbraut neðan Sunnubrautar.
Skipulagsnefnd leggur til að stefnan verði kynnt íbúum í upphafi árs 2023. Stefnt er að því að hún taki gildi vorið/sumarið 2023.
Skipulagsnefnd vísar erindu til bæjarráðs til umfjöllunar.2. Breyting á deiliskipulagi á Stað
Samherji fiskeldi sækir um óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Stað vestan Grindavíkur. Sótt er um stækkun á byggingarreit um 263 m2. Samþykki landeiganda fyrir deiliskipulagsbreytingunni liggur fyrir.
Skipulagsnefnd samþykkir að um óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Stað sé að ræða. Í ljósi þess að samþykki landeiganda liggur fyrir fellur skipulagsnefnd frá grenndarkynningu þar sem breytingin varðar ekki aðra en sveitarfélagið og umsækjanda ( sbr. 3 mgr. 44 gr. skipulagslaga nr. 123/2010).
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna. Í samræmi við viðauka 1.1 við bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Skipulagsfulltrúa er falið að afgreiða skipulagsbreytinguna til Skipulagsstofnunar í samræmi við skipulagslög.3. Breyting á deiliskipulagi - Spóahlíð 3
Smiðshöggið ehf. óskar eftir breytingu á deiliskipulagi fyrir Spóahlíð 3. Sótt er um að fá að breytta byggingareit fyrir 12 íbúðir. Jafnframt breytingar á innkeyrslu og tilfærslu á lóðarmörkum án breytinga á lóðarstærð.
Skipulagsnefnd samþykkir að farið verði með framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Spóahlíð 3 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa er falið að grenndarkynna skipulagstillöguna fyrir lóðarhöfum við Spóahlíð 1, 5 og 9.
Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna breytingu á grunngögnum deiliskipulags og lóðarblöðum, kostnað sem verður til við færslu á innviðum á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar o.s.frv.4. Seljabót 2a - óveruleg deiliskipulagsbreyting
Skipulagsfulltrúi óskar eftir að gerð verði breyting á deiliskipulagi lóðarinnar við Seljabót 2a. Óskað eftir að útbúin verði byggingarreitur undir dælustöð fyrir fráveitukerfi.
Skipulagsnefnd samþykkir að farið verði í deiliskipulagsbreytinguna og óskar umsagnar frá hafnarstjórn um tillöguna áður en áfram er haldið.5. Gjaldskrá fyrir byggingarleyfis-, skipulags- og þjónustugjöld
Drög að breyttri gjaldskrá byggingarleyfis-, skipulags- og þjónustugjalda Grindavíkurbæjar lögð fram.
Skipulagsnefnd samþykkir drögin og vísar þeim til umfjöllunar í bæjarráði og afgreiðslu í bæjarstjórn.6. Reglur um lóðarúthlutanir - tillaga að breytingu des 2022
Drög að breytingum á reglum um lóðarúthlutanir Grindavíkurbæjar lögð fram.
Skipulagsnefnd samþykkir drögin og vísar þeim til umfjöllunar í bæjarráði og afgreiðslu í bæjarstjórn.7. Aðalskipulagsbreyting í Reykjanesbæ Vinnslutillaga ósk um umsögn
Reykjanesbær óskar umsagnar við vinnslutillögu aðalskipulagsbreytingar á Reykjanesi. Breytingin varða stækkun á iðnaðarsvæði i5 og aukning á byggingarmagni. Gert er ráð fyrir uppbyggingu fiskeldis á svæðinu.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við skipulagstillöguna og vísar afgreiðslu málsins til afgreiðslu bæjarstjórnar.