Skipulagsnefnd - 120. fundur
- 15.05.2023
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 17:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 120
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Lilja Ósk Sigmarsdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaraformaður
- Erla Ósk Wissler Pétursdóttirvaramaður
- Steinberg Reynissonaðalmaður
- Unnar Á. Magnússonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Hópsvegur 1 - breyting á deiliskipulagi
Grenndarkynningartími vegna deiliskipulagstillögu við Hópsveg 1 er liðinn. Tvær athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra og lögfræðingi skipulags- og umhverfissviðs að útbúa drög að viðbrögðum við þeim athugasemdum sem bárust.2. Ufsasund 10 - umsókn um lóð
Ufsasund ehf. sækir um lóðina Ufsasund 10 til byggingar iðnaðarhúss.
Samþykkt að uppfylltum skilyrðum gr. 3.2. reglna um lóðarúthlutanir í Grindavíkurbæ.3. Ufsasund 12 - umsókn um lóð
Ufsasund ehf. sækir um lóðina Ufsasund 12 til byggingar iðnaðarhúss.
Samþykkt að uppfylltum skilyrðum gr. 3.2. reglna um lóðarúthlutanir í Grindavíkurbæ.4. Ásabraut 5 - Fyrirspurn um byggingaráform
Fyrirspurn varðandi fyrirhugaða stækkun/viðbyggingu (stækka eldhús og stofu til suðurs) á Ásabraut 5 lögð fram.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við fyrirspurnina. Sækja þarf um byggingarleyfi fyrir áformunum til skipulagsnefndar þar sem ekki er í gildi deiliskipulag fyrir svæðið, áformin yrðu í kjölfarið grenndarkynnt.5. Sjónarhóll 129156 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1,
Grenndarkynningu vegna byggingaráforma við Sjónarhól er lokið án athugasemda.
Með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022 er um fullnaðarafgreiðslu að ræða af hálfu skipulagsnefndar.
Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.6. Umsókn um framkvæmdaleyfi við Fagradalsfjall
Framkvæmdaleyfisumsókn vegna vegs/slóða upp á Fagradalsfjall lögðu fram.
Skipulagsnefnd hefur farið yfir framkvæmdaleyfisumsókn Sigurðar Guðjóns Gíslasonar vegna gerð vegslóða upp á Fagradalsfjalls.
Skipulagsfulltrúa er falið að óska eftir umsögn Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands í samræmi við 3. mgr. 37. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013 þar sem framkvæmdin fer um svæði á C-hluta náttúruminjaskrár.7. Sorpflokkun við heimili - Borgað þegar hent er, innleiðing
Málið tekið til umræðu í kjölfar íbúafundar sem haldinn var fimmtudaginn 11. maí í Gjánni.
Skipulagsnefnd hvetur íbúa, fyrirtæki og stofnanir bæjarins að undirbúa aukna flokkun.
Erindinu er vísað til umfjöllunar í bæjarráði. Skoða þarf hvort stofnanir sveitarfélagsins séu tilbúnar í aukna flokkun.8. Samþykkt um sorphirðu
Drög að samþykkt um sorphirðu lögð fram til umfjöllunar.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við drögin og vísar þeim til bæjarráðs til umfjöllunar.9. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 72
Fundargerð afgreiðslunefndar byggingar- og skipulagsmála nr. 72 lögð fram til upplýsinga.