Skipulagsnefnd - 66. fundur
- 11.12.2019
- Fundargerð
- Kl. 16:15 -
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 66
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
- Björgvin Björgvinssonvaramaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Deiliskipulag - Norðan Hópsbrautar
Farið yfir uppfærðar tillögu að nýju deiliskipulagi norðan Hópsbrautar.
Sviðsstjóra falið að koma á framfæri athugasemdum nefndarinnar.2. Endurskoðun Aðalskipulags Grindavíkur 2010-2030.
Vegna endurskoðunar á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032 eru lagðar fram til upplýsinga athugasemdir Skipulagsstofnunar við skipulagstillöguna og umhverfismat hennar.
Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram með ráðgjafa. Stefnt er að því að leggja uppfærða tillögu fyrir næsta fund skipulagsnefndar.3. Efrahóp 6 og 8 - deiliskipulagsbreyting
Tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi við Efrahóp 6 og 8. Athugasemdafrestur grenndarkynningar vegna tillögu rann út þann 5.desember sl. Engin athugasemd barst.
Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkti deiliskipulagsbreytinguna og vísar henni til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.4. Breyting á deiliskipulagi við Víðihlíð
Farið yfir fyrirhugaða deiliskipulagsbreytingu við Víðihlíð.
Skipulagsnefnd samþykkir að fara í deiliskipulagsbreytinguna og felur sviðstjóra að vinna málið áfram.5. Skipulagsmál árið 2020
Lagt fram yfirlit yfir fyrirhugaða vinnu í skipulagsmálum á næsta ári.