Skipulagsnefnd - 55. fundur
- 24.04.2019
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 18:30
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 55
- Ritari: Sigurður Ólafsson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Anton Kristinn Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Unnar Á Magnússonvaramaður
- Sigurður Halldórssonvaramaður
Formaður óskaði eftir að taka á dagskrá "Bjarmaland: Umsókn um byggingarleyfi - 1904057" sem afbrigði.
Samþykkt með öllum atkvæðum nefndarmanna.
1. Verndarsvæði í byggð: Þórkötlustaðahverfi
Málið verður unnið áfram.
2. Endurskoðun Aðalskipulags Grindavíkur 2010-2030.
Skipulagsnefnd ásamt Brynju Dögg skipulagsfræðingi frá verkfræðistofunni EFLU hafa skipulagt samráðsfundi með hagsmunaaðilum vegna stíga- og slóðamála.
3. Lambhúskot - Umsókn um byggingarleyfi
Skipulagsnefnd samþykkir erindið. Byggingarfulltrúi gefur út byggingarleyfi þegar öll hönnunargögn hafa verið samþykkt.
4. Breyting á gjaldskrá- vatnsveita
Skipulagsnefnd samþykkir uppfærða gjaldskrá og vísar erindinu til bæjarstjórnar.
5. Breyting á gjaldskrá - byggingaleyfis og þjónustugjalda
Skipulagsnefnd samþykkir uppfærða gjaldskrá og vísar erindinu til bæjarstjórnar.
6. Breyting á gjaldskrá- fráveita og rotþró
Skipulagsnefnd samþykkir uppfærða gjaldskrá og vísar erindinu til bæjarstjórnar.
7. Víkurhóp 57- umsókn um lóð
Skipulagsnefnd samþykkir umsóknina. Umsækjandi skal uppfylla skilyrði nýrra úthlutunarreglna Grindavíkurbæjar. Nýjar úthlutunarreglur voru samþykktar í bæjarstjórn 26. mars 2019.
8. Búðir - Umsókn um byggingarleyfi
Skipulagsnefnd samþykkir erindið. Byggingarfulltrúi gefur út byggingarleyfi þegar öll hönnunargögn hafa verið samþykkt.
9. Umsókn um framkvæmdaleyfi - Rafvæðing Miðgarðs og hafnarsvæðis
Skipulagsnefnd samþykkir áformin og felur sviðsstjóra að gefa út framkvæmdaleyfi.
10. Umsókn um framkvæmdaleyfi - Stækkun heimtaugar að Hafnargötu 18
Skipulagsnefnd samþykkir áformin og felur sviðsstjóra að gefa út framkvæmdaleyfi.
11. Hvassahraun 5 - Færsla á ljósastaur
Skipulagsnefnd samþykkir erindið. Framkvæmdin verður framkvæmd af Grindavíkurbæ og allur kostnaður verður greiddur af umsækjanda.
12. Hólmasund 6 - Stækkun á byggingarreit
Skipulagsnefnd samþykkir erindið og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.
13. Stjörnublikk ehf - Umsókn um stöðuleyfi
Skipulagsnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um leyfi frá HS Orku.
14. Krýsuvíkurvegur - endurbætur
Skipulagsnefnd samþykkir áformin og felur sviðsstjóra að gefa út framkvæmdaleyfi.
15. Auðsholt - Umsókn um byggingarleyfi
Skipulagsnefnd bendir á að útlit hússins samræmist ekki þegar auglýstri Verndaráætlun í byggð í Þórkötlustaðahverfi. Umsækjanda er bent á að endurskoða útlit hússins.
16. Bjarmaland - Umsókn um byggingarleyfi
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Byggingarfulltrúi gefur út byggingarleyfi þegar öll fullnægjandi hönnunargögn hafa verið samþykkt.
17. Afgreiðslunefnd byggingarmála - 35
Lagt fram til kynningar.