Skipulagsnefnd - 50. fundur
- 21.01.2019
- Fundargerð
- Kl. 16:00 -
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 50
- Ritari: Sigurður Ólafsson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Anton Kristinn Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
1. Endurskoðun Aðalskipulags Grindavíkur 2010-2030.
Skipulagsnefnd samþykkir drög að tillögu til forkynningar á endurskoðun aðalskipulags 2018 - 2030 samkv. 2. mgr. 30. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki drögin samkvæmt ofangreindum texta.2. Verbraut 1: breyting á skipulagi
Lilja Ósk Sigmarsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
Fyrirhuguð er uppbygging á lóð við Verbraut 1. Teknar eru fyrir tillögur að óverulegum breytingum á skipulagsáætlunum: aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 og deiliskipulagi miðbæjar- hafnarsvæði og Gamla bæjarins, dags. janúar 2019. Breytingarnar eru gerðar vegna breyttrar landnotkunar og fyrirhugaðrar uppbyggingar á Verbraut 1.
Skipulagsnefnd samþykkir breytingarnar og að farið verði með þær sem óverulegar og grenndarkynntar í fjórar vikur skv. 2. mgr. 36. gr. og 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010.
Skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki óverulegu breytingarnar á skipulagsáætlunum samkv. ofangreindum texta.3. Deiliskipulag - Norðan Hópsbrautar
Lagt fram til kynningar.
4. Hraðfrystihús Þórkötlustaða - Umsókn um byggingarleyfi
Skipulagsnefnd samþykkir breytta notkun á starfsemi við Þórkötlustaðarveg 3. Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn berast.
Skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki byggingaráformin.5. Ægisgata 2a - umsókn um byggingarleyfi
Skipulagsnefnd samþykkir breytta notkun á starfsemi við Ægisgötu 2a úr mjölgeymslu í verksmiðju og geymslur.
Hafnarstjórn gerði ekki athugasemd við breytingarnar.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn berast.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að ofangreind erindi verði samþykkt.6. Búðir - Umsókn um byggingarleyfi
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn berast.
Skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki byggingaráformin.7. Víkurhóp 16 - 22 - Breyting á deiliskipulagi
Skipulagsnefnd samþykkir beiðni lóðarhafa um að fara í breytingu á deiliskipulagi við Víkurhóp 16 - 22. Leggja þarf breytingar á deiliskipulagi fyrir skipulagsnefnd. Allur kostnaður sem af þessum breytingum hlýst, skal lóðarhafi bera.
Skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki erindið.8. Skipastígur 29 - Stækkun á einbýlishúsi
Erindi frestað.
9. Hólmasund 6 - Stækkun á byggingarreit
Skipulagsnefnd samþykkir stækkun á byggingarreit og óverulegri breytingu á deiliskipulagi sem greidd verður af lóðarhafa. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn berast.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja erindið.10. Hafnargata 18 - Umsókn um byggingarleyfi
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn berast.
Skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki byggingaráformin.11. Bakkalág 17 - Fyrirspurn um stækkun húsnæðis
Erindi frestað. Skipulagsnefnd óskar frekari gagna.
12. Hafnargata 6: Umsókn um byggingarleyfi
Skipulagsnefnd samþykkir nýtt lóðarblað fyrir Hafnargötu 6. Byggingarfulltrúi samþykkir byggingarleyfið þegar öllum fullnaðarhönnunargögnum hefur verið skilað.
13. Víkurhóp 59 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi
Skipulagsnefnd heimilar Verkbæ ehf að fara í breytingu á deiliskipulaginu við lóð Víkurhóps 59. Umsækjandi skili fullnægjandi gögnum fyrir skipulagsnefnd.
Skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki erindið.14. Einarsbúð - endurbygging
Erindi frestað. Sviðsstjóra skipulagssviðs er falið að afla nánari gagna varðandi eignarhald lóðar.
15. Hafnargata 7a - Fyrirspurn um bílastæði
Skipulagsnefnd samþykkir erindið með þeim skilmálum að Grindavíkurbær beri ekki neinn kostnað af yfirtöku á svæðinu í framtíðinni.
16. Víkurhóp 19 - Fyrirspurn
Skipulagsnefnd samþykkir erindið. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn berast.