Skipulagsnefnd - 49. fundur
- 10.12.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 20:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 49
- Ritari: Sigurður Ólafsson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Anton Kristinn Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
1. Endurskoðun Aðalskipulags Grindavíkur 2010-2030.
Fulltrúar EFLU, Eva Dís Þórðardóttir og Brynja Dögg Ingólfsdóttir komu á fund skipulagsnefndar, varðandi vinnu við aðalskipulag Grindavíkurbæjar.
Forkynningargögn verða lögð fyrir næsta fund skipulagsnefndar.2. Hópsheiði 2 - Fyrirspurn um byggingu hesthúss
Nefndin hafnar erindinu, þar sem að viðkomandi lóð er ekki ætluð undir hesthús.
Umsækjenda er bent á að nægt lóðarframboð er norðan við núverandi hesthús og á gildandi deiliskipulagi.3. Miðgarður 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki byggingaráformin. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn berast.
4. Hraðfrystihús Þórkötlu - fyrirspurn um breytta notkun
Skipulagsnefnd frestar ákvörðun um breytta notkun húsnæðisins þar til frekari gögn berast.
5. Stöðuleyfi - Hafnargata 15
Skipulagsnefnd samþykkir erindið.