Skipulagsnefnd - 123. fundur
- 21.08.2023
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 17:20
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 123
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Lilja Ósk Sigmarsdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaraformaður
- Hrannar Jón Emilssonaðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonvaramaður
- Unnar Á. Magnússonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Aðalskipulagsbreyting íþróttasvæði (ÍÞ1) og íbúðarbyggð (ÍB7)
Fyrir liggur tillaga aðalskipulagsbreytingar fyrir íþróttasvæði (ÍÞ1) og íbúðarbyggð (ÍB7) í Grindavík. Í tillögunni felst að íbúðarbyggð (ÍB7) er stækkuð um 5750m2 til suðurs og opið svæði (OP) og íþróttasvæði (ÍÞ1) minnka sem breytingunni nemur. Vinnslutillaga var kynnt skv. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með athugasemdarfresti til 18. júlí 2023. Skipulagsnefnd tók fyrir þær umsagnir sem komu.
Skipulagsnefnd frestar erindinu og felur sviðsstjóra að boða fulltrúa knattspyrnudeildar, framkvæmdastjóra og formann U.M.F.G til næsta fundar.2. Hverfisskipulag í Grindavík - 2. áfangi
Uppfærð vinnslutillaga lögð fram fyrir hverfisskipulag Hrauns, Varar og Mánahverfis, greinargerð, uppdráttur og samráðsgátt.
Skipulagsfulltrúa falið að setja vinnslutillöguna í kynningu fyrir umsagnaraðilum og íbúum hverfisins.3. Umsókn um framkvæmdaleyfi við Fagradalsfjall
Framkvæmdaleyfisumsókn tekin fyrir. Umsagnir Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunnar Íslands lagðar fram.
Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag Grindavíkurbæjar 2018-2032. Skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdaleyfið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfið.4. Ásabraut 5 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1,
Grenndarkynningu vegna byggingaráforma við Ásabraut 5 er lokið án athugasemda.
Með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022 er um fullnaðarafgreiðslu að ræða af hálfu skipulagsnefndar.
Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.5. Heiðarhraun 3 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1,
Grenndarkynningu vegna byggingaráforma við Heiðarhraun 3 er lokið án athugasemda.
Með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022 er um fullnaðarafgreiðslu að ræða af hálfu skipulagsnefndar.
Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.6. Túngata 7 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,
Grenndarkynningu vegna byggingaráforma við Túngötu 7 er lokið án athugasemda þá liggur fyrir umsögn Minjastofnunar Íslands sem gerði ekki athugasemd.
Með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022 er um fullnaðarafgreiðslu að ræða af hálfu skipulagsnefndar.
Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.7. Túngata 1 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,
Þórhallur Garðarsson fyrir hönd Þórkötlu ehf. óskar eftir byggingarleyfi vegna breytinga á Túngötu 1 skv. svohljóðandi lýsingu:
Mhl. 01: Steyptur stigi er fjarlægður, inngangur á jarðhæð verður þar sem stigi var.
Mhl. 02: Gluggi verður settur í vegg þar sem inngangur inn á jarðhæð var, anddyri verður breytt í baðherbergi
Op á milli mhl. 01 og mhl. 02 verður lokað með vegg, þak stækkar.
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að grenndarkynna umsóknina fyrir lóðarhöfum við Víkurbraut 30 og Túngötu 3..8. Ufsasund 16 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,
Guðlaugsson ehf. sækir um byggingarleyfi á lóðinni Ufsasund 16 skv. meðfylgjandi aðaluppdráttum frá Faglausnum dagsett 22.07.2023.
Umsóknin er í samræmi við gildandi deiliskipulag fyrir lóðina. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingarleyfisumsóknin verði samþykkt.
Bókun skipulagsnefndar er vísað til bæjarstjórnar.9. Kynning á Grænbók um skipulagsmál
Lögð er fram grænbók um skipulagsmál ásamt drögum að greinargerð um stöðu skipulagsmála sem innviðaráðuneytið hefur lagt fram í samráðsgátt til kynningar og umsagnar.
10. Kynning á tillögu - Deiliskipulag íbúðarbyggðar norðan núverandi íbúðarbyggðar í Grænubyggð í Vogum
Sveitarfélagið Vogar auglýsir kynningu á tillögu að deiliskipulagi vegna fyrirhugaðrar íbúabyggðar í Grænubyggð, nánar tiltekið norðursvæði í gildandi aðalskipulagi.
Svæðið er skilgreint sem íbúabyggð í gildandi aðalskipulagi en ekki er í gildi deiliskipulag fyrir svæðið. Viðfangsefni deiliskipulagsins er m.a. að skipuleggja íbúðarbyggð með 334 íbúðum í sérbýlishúsum og fjölbýlishúsum. Gert er ráð fyrir að einbýlishús og parhús á einni hæð verði vestast á svæðinu nær ströndinni en þar fyrir ofan komi lítil fjölbýlishús eða raðhús á tveimur hæðum. Fölbýlishús, allt að 4 hæðir, verða við norðurjaðar svæðisins næst Vatnsleysustrandarvegi.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við skipulagstillöguna.