Skipulagsnefnd - 81. fundur
- 15.12.2020
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 17:35
- Gjánni
- Fundur nr. 81
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Anton Kristinn Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Deiliskipulag - Hlíðarhverfi
Uppfærð gögn deilisskipulags við Hlíðarhverfi vegna ábendinga Skipulagsstofnunnar um sérafnotarétt íbúða á jarðhæð í fjölbýli og umfjöllun um áfangaskiptingu uppbyggingar hverfis lögð fram.
Þá hafa eftirfarandi breytingar/viðbætur verið gerðar á gögnum:
- Lóðarnöfn sett á uppdrátt og í skilmálatöflu. Lóðanöfnum breytt á þremur götum frá skipulagsnefndar fundi þann 30.nóvember sl., Brekkuhlíð verður Brattahlíð, Hrafnshlíð verður Hrafnahlíð og Blikahlíð verður Fálkahlíð.
- Skilmálum og lóð fyrir spennistöð HS veitna bætt við á skipulagsuppdrátt og í greinagerð.
- Smávægilegar breytingar gerðar á lóðum á skipulagsuppdrætti og í skilmálatöflu vegna breytinga á miðlínu gatna.
Breytingar og viðbætur eru minniháttar og ekki þörf á að auglýsa tillöguna aftur.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna fyrir Hlíðarhverfi með þeim minniháttar breytingum sem hafa orðið á henni og fjallað er um í bókun þessari. Tillöguni er vísað til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.2. Breyting á deiliskipulagi við Víðihlíð
Tillaga að breytingu á deiliskipulaginu við Víðihlíð lögð fram til samþykktar fyrir auglýsingu. Málsmeðferð á deiliskipulagsbreytingunni verður í samræmi við 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa og kynna framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi við Víðihlíð og vísar henni til bæjarstjórnar til afgreiðslu.3. Deiliskipulagsbreyting - Orkuvinnslusvæði á Reykjanesi
Skipulagslýsing vegna deiliskipulagsbreytingar á orkuvinnslusvæði á Reykjanesi lögð fram.
Málsmeðferð verður í samræmi við 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir skipulagslýsinguna og að um hana verði leitað umsagna hjá umsagnaraðilum og kynnt almenningi. Erindinu er vísað til bæjarstjórnar.4. Suðurnesjalína 2 - umsókn um framkvæmdaleyfi
Landsnet sækir um framkvæmdarleyfi fyrir því að byggja 220 kV raflínu, Suðurnesjalínu 2, milli Hamraness í Hafnarfirði og Rauðamels í Grindavík. Sótt er um framkvæmdaleyfi á grundvelli 13. og 14. gr. skipulagslaga, nr. 123/2010 og reglugerðar um framkvæmdaleyfi, nr. 772/2012. Suðurnesjalína 2, alls um 33,9 km og er hluti hennar innan Grindavíkur 0,79 km. Miðað er við að hefja framkvæmdir við Suðurnesjalínu 2 árið 2021 og að spennusetning línunnar verði í lok árs 2022.
Skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdarleyfið og vísar afgreiðslunni til bæjarstjórnar.5. Tillaga að viðauka við Landsskipulagsstefnu 2015-2026 - ósk um umsögn
Skipulagsstofnun óskar eftir umsögn um tillögu að viðauka við Landsskipulagsstefnu 2015-2026 sem auglýst er til kynningar ásamt umhverfismati í samræmi við lög nr. 123/2010 og 105/2006 og reglugerð nr. 1001/2011. Í tillögunni er sett fram stefna um loftslagsmál, landslag og lýðheilsu í tengslum við framkvæmd skipulagsmála og tekur hún eftir atvikum til allra viðfangsefna gildandi landsskipulagsstefnu. Auk þess felur tillagan í sér breytingar á gildandi landsskipulagsstefnu varðandi skipulag haf- og strandsvæða m.t.t. laga nr. 88/2018 um skipulag haf- og strandsvæða.
Lagt fram.6. Baðsvellir 7 - Umsókn um byggingarleyfi
Grenndarkynning á umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar að stærð 11,4 m2 við Baðsvelli 7 hefur farið fram án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Í samræmi við 6 gr. samþykktar um skipulagsnefnd í Grindavík þá er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.7. Sólbakki - Umsókn um byggingarleyfi
Grenndarkynning vegna byggingaráforma, köld geymsla á lóð, við Sólbakka hefur farið fram án athugasemda. Ásamt því að umsögn Minjastofnunar liggur fyrir án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin með 4 atkvæðum og vísar til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu. Gunnar Már situr hjá.
Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.
8. Víkurhóp 59 - Umsókn um lóð
Eignarhaldsfélagið Normi ehf. sækir um lóðina Víkurhóp 59.
Skipulagsnefnd samþykkir að úthluta Eignarhaldsfélaginu Norma lóðinni Víkurhóp 59 að uppfylltum skilyrðum í gr. 3.2 í lóðarúthlutunarreglum Grindavíkurbæjar. Úthlutun lóðar er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.