Skipulagsnefnd - 90. fundur
- 20.09.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 19:05
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 90
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Björgvin Björgvinssonaðalmaður
- Sigurður Halldórssonvaramaður
- Unnar Á Magnússonvaramaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Hverfisskipulag Stíga- og Vallahverfis í Grindavík
Erla Bryndís Kristjánsdóttir og Einar Jónsson frá Verkís sáttu fundinn undir dagskrárliðnum.
Tillaga að hverfisskipulagi í Stíga- og Vallahverfi lögð fram. Farið yfir tillöguna, forsendur hennar og umhverfismat.
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra leggja skipulagsdrögin fram til almennrar kynningar fyrir íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum.2. Breyting á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar: Gossvæði og sæstrengur
Skipulagstillagan hefur verið kynnt í samræmi við 2.mgr. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd leggur til að eftirfarandi breyting verði gerð á skipulagstillögunni fyrir auglýsingu:
- Gönguleið við gosstöðvarnar í Geldingadal sem í daglega er kölluð gönguleið B verður sett inn á skipulagstillöguna.
Skipulagsnefnd samþykkir skipulagstillöguna með áorðnum breytingum og vísar henni til bæjarstjórnar til afgreiðslu í samræmi við 3.mgr. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.3. Breytingar á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar við Golfvöll - lýsing verkefnis
Umsagnir við skipulagslýsingu vegna aðalskipulagsbreytingar við golfvöll lagðar fram til umfjöllunar.
Í samræmi við bókun skipulagsnefndar á fundi nr. 89 þann 26.ágúst sl. þá verður aðalskipulagsbreyting vegna göngu- og hjólastígs við Nesveg og hreinsivirkis við Eyjabakka unnar með aðalskipulagsbreytingu við golfvöll.
Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.4. Breyting á Aðalskipulagi Reykjanesbæjar og nýtt deiliskipulag vegna fiskeldis á Reykjanesi Ósk um umsögn
Reykjanesbær óskar eftir umsögn Grindavíkurbæjar á aðalskipulagsbreytingu Reykjanesbæjar og nýju deiliskipulagi vegna fiskeldis á Reykjanesi.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við skipulags- og matslýsinguna en áskilur sér rétt til að koma með athugasemdir á síðari stigum gerist þess þörf.
Skipulagsnefnd vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.5. Aðalskipulag Reykjanesbæjar 2020-2035 vinnslutillaga til kynningar
Aðalskipulag Reykjanesbæjar 2020-2035 vinnslutillaga samkvæmt 30. gr. skipulagslaga lögð fram.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við vinnslutillöguna en áskilur sér rétt til að koma með athugasemdir á síðari stigum gerist þess þörf.
Skipulagsnefnd vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.6. Breyting á deiliskipulagi hesthúsahverfis - Hópsheiði 11 og 13
Tillaga að breyttu deiliskipulagi hesthúsahverfis fyrir lóðirnar Hópsheiði 11 og 13 lögð fram. Málsmeðferð deiliskipulagsbreytingar skal vera í samræmi við 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Eftirfarandi breytingar eru m.a lagðar til á deiliskipulaginu:
- Lóðirnar Hópsheiði 11 og 13 eru sameinaðar í eina lóð undir heitinu Hópsheiði 11.
- Fjöldi bílastæða var áður 4 á hvorri lóð en verður nú 8 á einni lóð.
- Byggingarreitur er færður fram um 5 m og breikkar úr 10 í 14 m.
Skipulagsnefnd felur sviðssstjóra að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhafa við Hópsheiði 9.7. Leynisbrún 18 - Umsókn um byggingarleyfi
Grenndarkynning byggingarleyfisumsóknar við Leynisbrún 18, þar sem sótt er um að bæta við glugga á vesturhlið og leiðrétta skráningu á kjallar, er lokið án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Í samræmi við 6 gr. samþykktar um skipulagsnefnd í Grindavík þá er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.8. Búðir - Breyting á byggingarleyfi
Sótt er eftir breytingu á útgefnu byggingarleyfi fyrir Búðir í Þórkötlustaðarhverfi. Óskað er eftir að stækka bílageymslu um 1 m til austurs og 2 m til norðurs.
Í skilmálum verndaráætlunar Þórkötlustaðarhverfis segir m.a.:
- Áður en sveitarstjórn tekur ákvörðun um hvort veita skuli leyfi til framkvæmda skal leita álits Minjastofnunar. Byggingaráform verða síðan grenndarkynnt hagsmunaaðilum og þeim gefin tækifæri til að koma sjónarmiðum og athugasemdum á framfæri. Hagsmunaaðilar teljast vera íbúar innan Þórkötlustaðahverfis.
Skipulagsnefnd samþykkir að sviðsstjóri leiti álits Minjastofnunar og grenndarkynni áformin fyrir íbúum Þórkötlustaðahverfis.9. Umferðaröryggismál í Grindavík
Stefna Grindavíkurbæjar í umferðaröryggismálum lögð fram eftir umfjöllun í fastanefndum bæjarins.
Sviðsstjóra falið að kynna stefnuna fyrir íbúum bæjarins á heimasíðu Grindavíkurbæjar.10. Heft ferðafrelsi vélknúinna ökutækja
Áskorun send skipulagsnefnd og bæjarstjórn um að halda þeim útivistastígum sem fyrir eru opnum til að allir hafi jafnan rétt á að ferðast um land Grindavíkur.
Lagt fram.11. Afgreiðslunefnd byggingarmála - 53
Fundargerð nr. 53 frá afgreiðslunefnd byggingarmála lögð fram.