Skipulagsnefnd - 119. fundur
- 03.05.2023
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 18:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 119
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Lilja Ósk Sigmarsdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaraformaður
- Hrannar Jón Emilssonaðalmaður
- Steinberg Reynissonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að taka inn mál á dagskrá með afbrigðum sem 7. mál: Fyrirspurn - Spóahlíð 12-20 - 2305002
Samþykkt samhljóða.
1. Seljabót 1-3 - umsókn um deiliskipulagsbreytingu
Tekin er fyrir tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir Seljabót 1-3. Grenndarkynningu er lokið án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna.
Í samræmi við 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1 við bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Skipulagfulltrúa er falið að afgreiða deiliskipulagstillöguna í samræmi við skipulagslög.
Skipulagsnefnd vekur athygli lóðarhafa/umsækjanda á eftirfarandi: Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við breytingu á innviðum (t.d. rafmagn, vatnslagnir og fráveita) á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.2. Spóahlíð 5 og 9 - umsókn um skipulagsbreytingu
Tekin er fyrir tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir Spóahlíð 5 og 9. Grenndarkynningu er lokið án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna.
Í samræmi við 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1 við bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Skipulagfulltrúa er falið að afgreiða deiliskipulagstillöguna í samræmi við skipulagslög.
Skipulagsnefnd vekur athygli lóðarhafa/umsækjanda á eftirfarandi: Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við breytingu á innviðum (t.d. rafmagn, vatnslagnir og fráveita) á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.3. Deiliskipulag iðnaðarsvæðis í Svartsengi
Skipulagsfulltrúa falið að ræða við HS orku um deiliskipulag iðnaðarsvæðisins í Svartsengi.
4. Hafnargata 26 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,
Eldhamar sækir um byggingarleyfi fyrir stækkun á Hafnargötu 26. Sótt er um að byggja við eldra hús til austurs, einnig 2 hæðir, þar sem hótelið er stækkað og bætt við 12 hótelherbergjum ásamt rýmum sem tengjast þeirri starfsemi. Nýbygging er byggð upp á sama hátt og eldra hús þar sem 1. hæð er steypt og 2. hæð er léttbyggt timburhús. Stærð nýbyggingar samkvæmt umsókn er 898,2 fermetrar.
Skipulagsnefnd staðfestir að byggingaráformin eru í samræmi við skipulag.
Þar sem byggingaráformin eru í samræmi við skipulag á svæðinu þá er um fullnaðarafgreiðslu skipulagsnefndar að ræða með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022.
Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.5. Borgarhraun 1 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,
Grenndarkynningu vegna byggingarleyfisumsóknar við Borgarhraun er lokið. Ein athugasemd barst.
Skipulagsnefnd frestar erindinu og felur byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa að ganga úr skugga um hvort Borgarhraun 1 sé í raun einbýli eða fjölbýli.6. Seljabót 2a - Umsókn um byggingarleyfi
Grindavíkurbær sækir um byggingarleyfi fyrir dælustöð á fráveitukerfi Grindavíkurbæjar við Seljabót 2a. Birt flatarmál stöðvarinnar er 50,1 m2. Einnig er sótt um leyfi fyrir aðliggjandi lögnum í götu sem tengjast dælustöðinni.
Skipulagsnefnd staðfestir að byggingaráformin eru í samræmi við skipulag.
Þar sem byggingaráformin eru í samræmi við skipulag á svæðinu þá er um fullnaðarafgreiðslu skipulagsnefndar að ræða með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022.
Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.7. Fyrirspurn - Spóahlíð 12-20
Fyrirspurn frá lóðarhafa við Spóahlið 12-20 um að lóðir fari úr 9 m á breidd í 7 m á breidd ásamt því að óskað er eftir því að lóðum fjölgi úr fimm í sex.
Skipulagsnefnd hafnar fyrirspurninni. Nefndin vill ekki breytta því skipulagi sem er í gildi fyrir raðhúsalóðina, þ.e. 5 íbúðir og að breidd bygginarreita sé 9 m.8. Fundargerðir 2023 - Svæðisskipulag Suðurnesja
Fundargerð 36. fundar svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja þann 30. mars 2023 lögð fram til kynningar.
9. Sorpflokkun við heimili - Borgað þegar hent er, innleiðing
Farið yfir innleiðing á breyttu tunnukerfi og flokkun heimilissorps. Íbúafundur verður haldinn fimmtudaginn 11. maí kl. 17:30 í Gjánni.
Fyrirhugað er að deila út tvískiptri tunnu á hvert heimili nú í lok maí eða byrjun júní ásamt því að merkja þær tunnur sem fyrir eru. Skipulagsnefnd tekur vel í aukna sorpflokkun.10. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 71
Fundargerð 71. fundar afgreiðslunefndar byggingar- og skipulagsmál þann 19. apríl 2023 lögð fram til kynningar.