Skipulagsnefnd - 32. fundur
- 18.09.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 32
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
- Þórir Sigfússonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Örn Sigurðssonvaramaður
- Anton Kristinn Guðmundssonvaramaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Staður: Fyrirspurn um smáhýsi
Forsvarsmenn arkitekta GlámaKím mættu á fundinn og kynntu áætlanir sínar með smáhýsi á Stað, vestan Grindavíkur. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila GlámaKím að hefja skipulag á svæðinu skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsnefnd bendir á að Grindavíkurbær er ekki landeigandi og þarf vinnan að vera í samráði við hann.
2. Deiliskipulag Víkurhóp: Breyting.
Erindi frá Grindinni kt. 610192-2389. Í erindinu er óskað eftir að fá að vinna breytingu á deiliskipulagi norðan Hópsbrautar. Tillagan tekur til Víkurhóps 30 og 32. Breytingarnar eru þær að byggingarreitir verði sameinaðir og færðir norður ásamt stækkun á lóð. Erindinu fylgja gögn unnin af JEES arkitektum dagsett 24.8.2017. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila Grindinni að hefja breytingu á skipulagi á svæðinu skv.2 mgr. 38 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
3. Vindmælingar: Vindorka í landi Staðar
Erindi frá HS Orku kt. 680475-0169 í erindinu er óskað er eftir heimild til að reisa allt að 80 metra hátt mastur til að styðja við frekari vindorkurannsóknir á svæðinu í landi Staðar. Skipulagsnefnd bendir á að ekki er búið að marka stefnu um vindmyllur í Grindavík. Unnið er að stefnumörkuninni í yfirstandandi endurskoðun aðalskipulags. Erindinu er hafnað.
4. Skilti í Grindavíkurbæ: Reglugerð
Drög að reglugerð um skilti fyrir Grindavík ásamt verkteikningum af nýrri skiltaborg við innkomuna í þéttbýlið í Grindavík um Grindavíkurveg. Skipulagsnefnd vísar málinu til umhverfis- og ferðamálanefndar.
5. Lóðaleigusamningar : Eftirfylgni
Málinu frestað.
6. Ægisgata 3: Breytt notkun á matshluta
Erindi frá Ólafi Baldri Bjarnasyni og Hirti Pálssyni. Í Erindinu er óskað eftir því að breyta hluta af Ægisgötu 3 í íþróttasal. Hafnarstjórn hefur tekið málið fyrir og gerir ekki athugasemdir. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd.
7. Deiliskipulag: Húsatóftir eldisstöð.
Tekið fyrir deiliskipulag Fiskeldis á Húsatóftum á uppdrætti með Greinargerð dagsett 24.10.2017 unnið af Tækniþjónustu SÁ . Á lóðinni sem deiliskipulagið nær til hefur verið stafrækt fiskeldisstöð um árabil sbr. aðalskipulag Grindavíkurbæjar 2010-2030. Fiskeldið í Húsatóftum er eigu Matorku en landeigandi er ríkissjóður Íslands. Langtímaleigusamningur er um lóðina milli ríkissjóðs og Matorku. Næsta nágrenni norðan við Nesveg, á svæði i5 í aðalskipulagi, verður Matorka með samskonar starfsemi.
Á uppdrætti eru byggingarreitir skilgreindur. Núverandi byggingar eru innan byggingarreits.
Nýir byggingarreitir eru skilgreindir fyrir mögulega stækkun á fiskeldi og uppbyggingu á
tengdri starfsemi.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skipulagsfulltrúa falið að auglýsa tillöguna og leita umsagna.8. Samþykkt um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa
Tillaga: Málinu frestað samþykkt með 3. atkvæðum. Fulltrúar S og B lista sitja hjá.
9. Skipulagsnefnd: Samþykkt
Tillaga: Málinu frestað samþykkt með 3. atkvæðum. Fulltrúar S og B lista sitja hjá.
10. Breyting á aðalskipulagi: Miðbær
Tekin fyrir tillaga formanns um að skipulagssvæðið verði minnkað. Sviðsstjóra er falið að leggja fram tillögu að skiptingu svæðisins í samræmi við umræður á fundinum. Samþykkt með þremur atkvæðum gegn einu atkvæði fulltrúa S lista, fulltrúi B lista situr hjá.
11. Deiliskipulag miðbæjarkjarna Grindavíkur.
Tekin fyrir tillaga formanns um að skipulagssvæðið verði minnkað. Sviðsstjóra er falið að leggja fram tillögu að skiptingu svæðisins í samræmi við umræður á fundinum. Samþykkt með þremur atkvæðum gegn einu atkvæði fulltrúa S lista, fulltrúi B lista situr hjá.
12. Byggingarleyfi: Leiðbeiningar
Nefndin ræddi um hvort leiðbeiningar um byggingarleyfi séu meira íþyngjandi hér en í nágrannasveitarfélögum. Sviðsstjóra falið að óska eftir mati Mannvirkjastofnunnar á því hvort greinagerð hönnuða sé ófrávíkjanleg regla og ef svo er hvernig er eftirliti háttað með að sveitarfélög séu að framfylgja því.
13. Umsókn um byggingarleyfi: Staðarsund 3
Erindi frá HH. Smíði. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir 774,2 fermetra iðnaðarhúsnæði. Erindinu fylgja teikningar unnar af Verkfræðistofu Suðurnesja dagsettar 8.8.2017. Skipulagsnefnd leggur til viðo bæjarstjórn að samþykkja veitingu byggingaráformana.
14. Grindavíkurvegur: Vegrið og fláar
Lagt fyrir áætlanir Vegagerðarinnar um framkvæmdir við Grindavíkurveg árið 2017. Framkvæmdir snúa að auknu umferðaröryggi með auknum fláum, víravegriði á köflum og fjarlægja grjót í vegköntum. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir.