Skipulagsnefnd - 85. fundur
- 19.04.2021
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 18:50
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 85
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
- Björgvin Björgvinssonvaramaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Deiliskipulagsbreyting - Orkuvinnslusvæði á Reykjanesi
Ráðgjafi HS orku við deiliskipulagsbreytingu á orkuvinnslusvæðinu á Reykjansi mætti á fundinn til að fara yfir stöðuna.
Sviðsstjóra falið að afmarka svæði fyrir lóðir á deiliskipulagssvæðinu.2. Breyting á deiliskipulagi við Víðihlíð
Fulltrúi frá VSÓ ráðgjöf, Grindinni ehf. og HH smíði mættu á fundinn undir dagskrárliðnum. Áður auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi Víðihliðar tekin til umfjöllunar. Samþykkt að gera eftirfarandi breytingar á tillögunni:
- Að bygging sem fyrirhugað er að hýsi félagsaðstöðu eldri borgara í Grindavík verði gerð að tveggja hæða byggingu en var ein hæð í auglýstri tillögu.
- Að fjölbýlishús næst Víðihlíð merktar 1,2,3 og 4 hækki um eina hæð m.v. auglýsta tillögu að því gefnu að því fylgi bílakjallari.
- Að heimild verði fyrir bílageymslu undir grænu svæði milli lóða 1 og 4.
- Að bílastæðum verði bætt við á uppdrátt austan við hús nr. 3
Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa og kynna framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi við Víðihlíð og vísar henni til bæjarstjórnar til afgreiðslu.3. Deiliskipulagsbreyting Efrahóp 4
Óskað er eftir að stækka byggingarreit við Efrahóp 4 um 0,6 m til austurs og vesturs, þ.e. að heildarbreikkun á byggingarreit verði 1,2 m.
Skipulagnefnd heimilar umsækjenda að fara umbeðna deiliskipulagsbreytingu og að það verði gert í samræmi við 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sviðsstjóra falið að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Efrahóps 1,2,3,5,6 og 7. Grenndarkynningartími er amk. 4 vikur í samræmi við 44 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd vekur athygli lóðarhafa/umsækjanda á eftirfarandi:
Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við breytingu á innviðum (t.d. rafmagn, vatnslagnir og fráveita) á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.4. Vegir í náttúru Íslands - breyting á vegskrá
Lögð fram tillaga að breytingu á orðalagi í vegskrá sbr. reglugerð um vegi í náttúru Íslands samkvæmt lögum um náttúruvernd nr. 260/2018.
Sveitarfélagið hefur ekki heimild til að takmarka umferð á vegum og stígum í vegskrá umfram það sem lög segja til um.
Skipulagsnefnd samþykkir breytinguna og vísar afgreiðslunni til staðfestingar bæjarstjórnar.5. Höskuldavellir 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um byggingarleyfi fyrir því að stækka bílageymslu við Höskuldavelli 1 um 18,9 m2.
Lóðin er á ódeiliskipulögðu svæði. Samkvæmt 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og gr. 5.9.12 í skipulagsreglugerðar skal fara fram grenndarkynning á byggingaráformunum á ódeiliskipulögðum svæðum.
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að grenndarkynna byggingaráformin fyrir lóðarhafa við Höskuldavellir 3.6. Víkurbraut 22 - Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um byggingarleyfi vegna breytingar á innra skipulag, útliti og breyttri notkun á bílageymslu við Víkurbraut 22.
Sviðsstjóra er falið að grenndarkynna bygggingarleyfisumsóknina fyrir lóðarhöfum að Víkurbraut 17, 19 og 20.7. Framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda í tengslum við eldgos í Fagradalsfjalli
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs óskar eftir heimild skipulagsnefnar til að samþykkja framkvæmdaleyfi vegna nauðsynlegra framkvæmda m.a. til að tryggja öryggi gesta, innviðauppbyggingu og verndun náttúru vegna eldgos í Fagradalsfjalli. Allar framkvæmdir á svæðinu eru unnar í samvinnu við landeigendur, Umhverfisstofnun ásamt öðrum þar til bærum aðilum.
Skipulagsnefnd samþykkir erindið og vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar.8. Vatnaáætlun Íslands
Vatnaáætlun íslandi 2022 -2027 ásamt aðgerðaráætlun, vöktunaráætlun og umhverfisskýrslu vatnaáætlunar eru allar komnar í 6 mánaða opinbera kynningu. Frestur til að senda inn ábendingar og athugasemdir er til og með 15.júní 2021.
Erindið er lagt fram til kynningar.9. Afgreiðslunefnd byggingarmála - 50
Fundargerð afgreiðslunefndar byggingarmála nr. 50 lögð fram til kynningar.