Skipulagsnefnd - 65. fundur
- 18.11.2019
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 18:36
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 65
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Guðmundur L. Pálssonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Anton Kristinn Guðmundssonaðalmaður
- Lilja Ósk Sigmarsdóttiraðalmaður
- Gunnar Már Gunnarssonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Deiliskipulag - Norðan Hópsbrautar
Fulltrúar Eflu verkfræðistofu sátu fundinn undir þessum lið. Tillaga að deiliskipulagi (gatnaskipulag) í nýju hverfi norðan Hópsbrautar hefur verið uppfært.
Skipulagsnefnd telur ástæðu til að auka aðgengi inn í hverfið og fjölga einbýlishúsalóðum í neðri hluta byggðarinnar.
Sviðstjóra falið að vinna málið áfram með Eflu verkfræðistofu í samræmi við umræður á fundinum.2. Skipulagsbreytingar við Víkurhóp
Tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi norðan Hópsbrautar (Vesturhluti)er í auglýsingu. Athugasemdafrestur rennur út þann 21.nóvember nk.
Skipulagsnefnd samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulaginu með þeim fyrirvara að ekki berist athugasemdir í grenndarkynningunni.
Málinu vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu með sama fyrirvara og hér að framan.3. Deiliskipulagsbreyting í Svartsengi
Uppfærð deiliskipulagstillaga frá HS orku vegna breytinga í Svartsengi. Óskað er eftir samþykki skipulagsnefndar fyrir því að auglýsa deiliskipulagsbreytinguna. Brugðist hefur verið við athugsemdum eftir 63.fund skipulagsnefndar.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við deiliskipulagstillöguna og samþykkir að hún fari í auglýsingu í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.4. Breyting á deiliskipulagi við Víðihlíð
Vegna hugmynda um uppbyggingu íbúða og félagsaðstöðu eldri borgara við Víðihlíð þarf að endurskoða deiliskipulagið á svæðinu.
Skipulagsnefnd felur sviðstjóra að vinna tillögu að breytingu á deiliskipulaginu og leggja fyrir nefndina.5. Deiliskipulagsbreyting í Víkurhópi - grænt svæði
Vegna ábendinga um að gera grænt svæði í Víkurhópinu að lóð er málið tekið inn á fund skipulagsnefndar.
Skipulagsnefnd felur sviðstjóra að kanna möguleikann á að byggja á því svæði.6. Eyjabakki Deiliskipulag
Skipulags- og matslýsing var auglýst og send Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum til umsagnar. Skipulags- og matslýsingin var einnig kynnt almenningi skv. 1.mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Gefin var tveggja vikna frestur til að skila inn umsögn. Fjórar umsagnir hafa borist frá umsagnaraðilum. Næsta skref er að hefja vinnu við tillögu að skipulagsbreytingunni.
Skipulagsnefnd felur sviðstjóra að vinna málið áfram.7. Kynning tillögu að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga 2008-2028 og tillaga að deiliskipulagi ásamt umhverfisskýrslu vegna nýs vatnsbóls.
Kynning tillögu að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga 2008-2028 og tillaga að deiliskipulagi ásamt umhverfisskýrslu vegna nýs vatnsbóls.
Umsagnarfrestur er til 25. nóvember 2019.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirhugðar breytingar.
Málinu vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.8. Nýtt geymslusvæði gáma í Grindavík
Vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á nýju hverfi norðan Hópsbrautar þarf að huga að nýju geymslusvæði fyrir gáma í Grindavik. Minnisblað Eflu Verkfræðistofu lagt fram.
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að kanna möguleikann á að nota svæðið við tanka við enda Nesvegs við Eyjabakka.9. Túngata 7 - fyrirspurn um breytingar og stækkun á húsi.
Grenndarkynningu vegan Túngötu 7 lauk þann 5.nóvember sl. þar sem ein athugasemd barst.
Skipulagsnefnd felur sviðstjóra að óska efir því við fyrirspyrjanda að sýnt verði skuggavarp vegna stækkunar á húsinu ásamt afstöðumynd með húsinu á lóð.