Skipulagsnefnd - 38. fundur
- 19.02.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 38
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
- Þórir Sigfússonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Víðgerði: gatnagerð 2018
Fyrirkomulag gatnagerðar tekið fyrir. Sviðsstjóra falið að láta vinna verðkönnunargögn fyrir nyrsta botnlanga í Víðihlíð.
2. Daggæsla : Húsnæðismál
Sviðsstjóra falið að láta vinna verðkönnunargögn fyrir húsnæði fyrir dagmæður við Hópsskóla.
3. Stangveiðifélag Grindavíkur: Beiðni um afnot af vatnasvæði
Erindi frá Stangveiðifélags Grindavíkur. Í erindinu er óskað eftir því að félagið fái svæði til umráða við Rásina. Skipulagsnefnd vísar málinu til umhverfis-og ferðamálanefndar. Sviðstjóra falið að afla nánari gagna.
4. Austurvegur 26b: fyrirspurn um stækkun
Erindi frá 240 ehf. Í erindinu er óskað eftir stækkun á lóð fyrir fjölgun smáhýsa á lóð við Austurveg 26b. Skipulagsnefnd felur sviðstjóra að bjóða forsvarsmönnum 240 ehf. á næsta fund skipulagsnefndar.
5. Harbour view: Fyrirspurn um þyrlupall
Erindi frá 240 ehf. Í erindinu er óskað eftir að fá að setja upp þyrlupall austan af Austurvegi 26b. Málinu frestað.
6. Skotsvæði: fyrirspurn
Svæðið sem um ræðir er skipulagt undir iðnað og er skipulagsnefnd ekki tilbúin að gera breytingar á aðalskipulagi þannig að á svæðinu verði starfrækt skotsvæði.
7. Mánagerði 6: umsókn um byggingarleyfi
Erindi frá Jóhanni Guðfinnssyni. Í erindinu er sótt um byggingarleyfi til þess að útbúa íbúð í bílskúr við Mánagerði 6. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt með fyrirvara um grenndarkynningu fyrir eigendum Mánagerði 4, Austurvegi 12 og 14. Skipulagsnefnd bendir á að ekki er heimilt að breyta bílskúr í séreign.