Skipulagsnefnd - 20. fundur
- 22.08.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:00
- á skrifstofu byggingafulltrúa
- Fundur nr. 20
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Jón Emil Halldórssonvaramaður
- Pétur Már Benediktssonvaramaður
- Páll Þorbjörnssonvaramaður
- Björgvin Björgvinssonvaramaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Víkurbraut 20: umsókn um byggingarleyfi
Erindi frá Þórkötlu ehf. 440407-1290 sækir um leyfi fyrir breytingum innan og utanhúss ásamt breytingum á bílskúr í íbúðarhúsnæði. Erindinu fylgja teikningar unnar af Tækniþjónustu SÁ. Dagsettar 16.06.2016. Skipulagsnefnd samþykkir erindið. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar ákvæði 3 mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 hafa verið uppfyllt.
2. Aðalskipulag: Beiðni um breytingu.
Sigurður vék af fundi við afgreiðslu málsins og Jón Emil kom inn í hans stað. Erindi frá Gísla Grétari Sigurðssyni og Herði Sigurðssyni f.h. landeigenda Hrauns. Í erindinu er farið fram á að stígar og slóðar í landi Hrauns verði fjarlægðir úr aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2020. Sviðsstjóra falið að ræða við hagsmunaaðila og fá lögfræðiálit m.t.t. nátturuverndarlaga nr. 60/2013. Málinu frestað.
3. Umsókn um byggingarleyfi: fjarskiptamastur við Víkurbraut 25.
Ólafur Már vék af fundi við afgreiðsu málsins og Jón Emil kom inn í hans stað. Míla ehf. óskar eftir byggingarleyfi fyrir uppsetningu á 18m fjarskiptamastri við Víkurbraut 25. Erindinu fylgja teikningar unnar af Úti-inni arkitektum. Fyrirhuguð framkvæmd hefur verið grenndarkynnt. Á grenndarkynningartíma barst undirskriftalisti frá 33 aðilum í nágrenni Víkurbrautar 25. Með undirskriftalistanum er fyrirhugaðri framkvæmd mótmælt. Í ljósi mótmæla við framkvæmdina leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að erindinu verði hafnað.
4. Deiliskipulag: Víðihlíð og nágrenni
Tekið fyrir bréf frá skipulagsstofnun dagsett 9. Júní 2016. Í bréfi skipulagsstofnunar er gerð athugasemd við að ekki hafi verið gert ráð fyrir lóðum undir hluta af mannvirkjum á svæðinu. Sviðstjóri leggur fram endurbætta útgáfa af tillögu að deiliskipulagi vegna svæðisins þar sem búið er að bæta inn lóðum. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt og sviðstjóra falið hún til fullnaðarafgreiðslu.
5. Umsókn um byggingarleyfi: Norðurljósavegur 1.
Erindi frá KE64 ehf. kt. 450913-0570. Í erindinu er óskað eftir stækkun um 10 herbergi á hótel Northen light inn við Norurljósaveg 1 í Svartsengi. Erindinu fylgja teikningar unnar af GÁG ehf Verk - og tækniráðgjöf og rs hönnun slf.dagsettar 16.06.2016. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar ákvæði 3 mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 hafa verið uppfyllt
6. Umsókn um byggingarleyfi: Hafnargata 7 innra skipulag og lóð.
Erindi frá olíuverslun Íslands kt. 500269-3249. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir breytingu á innraskipulagi, uppsetningu á girtu vinnusvæði og að koma fyrir gám á lóðinni. Erindinu fylgja teikningar unnar af ASK arkitektum dagsettar 15.07.2012. Nú þegar hefur verið sett upp girðing og gámur á svæðið. Þær framkvæmdir samræmast ekki svipmóti svæðisins. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja erindið með fyrirvara um að girðing verði skermuð og gámur verði staðsettur innan girðingar. Byggingarleyfi verður gefið út þegar kröfum um svipmót er virt og ákvæði 3 mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 hafa verið uppfyllt.
7. Víkurbraut 46: Fyrirspurn um stækkun.
Erindi frá Verkalýðsfélagi Grindavíkur. Í fyrirspurninni er óskað eftir afstöðu skipulagsnefndar til stækkunar á eldhúsi til austurs, erindinu fylgir skissa. Skipulagsnefnd tekur vel í erindið en telur að fyrirhuguð viðbygging ætti að vera a.m.k. einn metra frá lóðamörkum. Sækja þarf formlega um byggingarleyfi með byggingarnefndarteikningum. Byggingarleyfi verður gefið út þegar kröfum um svipmót er virt og ákvæði 3 mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 hafa verið uppfyllt.
8. Hafnargata 6: umsókn um byggingarleyfi
Erindi frá Bergbúum kt. 680406-1620. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir tveimur gistiherbergjum við Hafnargötu 6. Erindinu fylgja teikningar unnar af Stefáni Hallssyni. skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja byggingaráformin. Byggingarleyfi verður gefið út þegar ákvæðium 3 mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 hafa verið uppfyllt.