Skipulagsnefnd - 25. fundur
- 16.01.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 25
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Erla Ósk Wissler Pétursdóttiraðalmaður
- Örn Sigurðssonvaramaður
- Pétur Már Benediktssonvaramaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1.
Fundargerð tekin fyrir.
2. Breyting á deiliskipulagi: Norðurhóp 13, 15 og 17
Tekin fyrir tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir Hópshverfi. Í tillögunni er gert ráð fyrir stækkun byggingarreits til suðurs við Norðurhóp 13,15 og 17. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að breytingin verði samþykkt til kynningar skv. 2 mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að tillagan verði grenndarkynnt fyrir eigendum Norðurhóps 7, 9a, 9b, 11, 15, 17 og 32.
3. Staðarvör 4: Ósk um lokaúttekt.
Erindi frá eigendum Staðarvarar 4. Erindinu fylgir greinargerð ásamt svörum Mannvirkjastofnunar vegna málsins. Í svörum Mannvirkjastofnunar kemur fram að stofnunin mun ekki aðhafast meira í málinu. Í greinargerð kemur fram að mannvirkið er skráð á byggingarstig 7, þrátt fyrir að lokaúttekt hafi ekki farið fram. Í erindinu er óskað eftir að sveitarfélagið uppfylli lagaskyldur sýnar með þvi að láta lokaúttekt fara fram. Skv. svörum frá byggingarfulltrúa var ekki skilað inn fullnægjandi teikningum vegna framkvæmdarinnar. Skipulagsnefnd bendir á að byggingarfulltrúi mun framkvæmda lokaúttekt þegar fullnægjandi teikningum hefur verið skilað inn til byggingarfulltrúa.
4. Tjaldsvæði: Smáhýsi
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að útfæra tillögu b. Skipulagsnefnd áréttar að skráðar minjar eru á svæðinu og ber framkvæmdaraðilum að sýna aðgát við allar framkvæmdir á svæðinu. Skipulagsnefnd leggur til við byggingarfulltrúa að tilkynna málið inn til Minjastofnunar.
5. Stamphólsvegur 5: breyting á deiliskipulagi - minnkun byggingarreitar
Tekin fyrir breyting á deiliskipulagi Stamphólsvegar. Breytingin tekur til minnkunar á byggingarreit og nýtingarhlutfalli úr 0,8 í 0,59. Breytingin hefur ekki áhrif á nágranna. Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi sem umsækjandi hafið áður fengið samþykkt hjá Grindavíkurbæ. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að breytingin verði samþykkt skv. 3 mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
6. Kynningarmál: lausar lóðir
Lagt fram. Sviðsstjóra falið að vinna áfram tillögur að lóðum samkvæmt umræðum á fundinum.
7. Almannavarnarnefnd Grindavíkur - 56
Lagt fram.
8. Steinar: umsókn um byggingarleyfi
Jón Guðmundur Ottósson kt:081071:3149 sækir um f/h fasteignafélagsins Steinar ehf. að eignin verði breytt úr íbúðarhúsi í gistiheimili. Skipulagsnefnd bendir á að áætlanirnar samræmast ekki deiliskipulagi. Erindinu hafnað.
9. Viðhald: bílastæði og akbrautir innan lóða
Sviðsstjóra falið að vinna minnisblað um málið.