Skipulagsnefnd - 12. fundur
- 07.01.2016
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 17:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 12
- Ritari: Ármann Halldórsson
Nefndarmenn
- Sigurður Guðjón Gíslasonformaður
- Þórir Sigfússonaðalmaður
- Marta Sigurðardóttiraðalmaður
- Erla Ósk Wissler Pétursdóttiraðalmaður
- Ólafur Már Guðmundssonaðalmaður
- Ármann Halldórssonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
1. Miðhóp: Gatnagerð
Erindi frá Hlyni Helgasyni f.h. HH smíði. Í erindinu er lýst yfir óánægju með gatnagerð í Miðhópi og að hæð götu hafi ekki verið breytt í samræmi við óskir HH smíði á framkvæmdatíma. Einnig er óskað eftir að kostnaður við að laga stétt að innkeyrslum vegna þessa verði ekki látinn falla á HH smíði.
Sviðsstjóri leggur fram minnisblað um málið. Skipulagsnefnd bendir á að mælablað með öllum hæðamerkjum fyrir götuna lá fyrir þegar byggjandi lét hanna mannvirki við Miðhóp 1-9. Það sé því á ábyrgð hönnuða að hafa mannvirki s.s. hús, stéttir og lagnir í réttri hæð í hönnunarferlinu. Nefndin bendir á að engin formleg ósk um breytingu barst nefndinni með nánari tillögum hvorki á hönnunarstigi eða framkvæmdatíma. Á framkvæmdatíma var komið til móts við byggjanda eftir bestu getu með því að sleppa kantstein og snúa niðurtektum í gangstétt inn á við til að lækka hæð götu. Skipulagsnefnd hafnar erindinu.2. Deiliskipulag Víðihlíð og nágrenni
Málinu frestað.
3. Deiliskipulag hafnarsvæðis: Breyting
Tekin fyrir óveruleg breyting á deiliskipulagi. Breytingin tekur til gatnamóta Ránagötu og Hafnargötu og stækkun á byggingarreit við Seljabót 3. Skipulagsnefnd vísar málinu til hafnarstjórnar.
4. Deiliskipulag norðan Hópsbrautar vesturhluti: Ósk um breytingu.
Takið fyrir eftir grenndarkynningu. Tvær athugasemdir frá einstaklingum bárust. Í athugasemdunum er fyrirhugaðri framkvæmt mótmælt vegna skerts útsýnis og breyttu íbúðaformi.
Í ljósi athugasemda íbúa hafnar skipulagsnefnd breytingu á deiliskipulagi. Nefndin bendir á að á skipulagssvæðinu eru raðhúsalóðir fyrir 4 íbúðir.5. Fiskeldi á Stað: Breyting á aðalskipulagi.
Tekin fyrir skipulagslýsing vegna breytingar á aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030. Breytingin felur í sér stækkun á iðnaðarsvæði i7 um 17,7 ha til austurs yfir opið svæði og svæði á náttúruminnjaskrá. Einnig eru gerðar breytingar í greinargerð. Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að kynna lýsinguna og óska eftir umsögnum umsagnaraðila sbr. 30. skipulagslaga nr. 123/2010
6. Iðnaðarsvæði Eyjabakka: breyting á deiliskipulagi.
Tekin fyrir eftir grenndarkynningu. Á kynningartíma barst ein athugasemd frá eigendum Tangasund 4-6. Ekki er gerð efnisleg athugasemd við grenndarkynninguna heldur snúa athugasemdir að frágangi lóðar og viðbótarbreytingu á deiliskipulagi. Málinu frestað.
7. Umsókn um byggingarleyfi: Lokahús í Arfadalsvík
Erindi frá HS Orku kt.680475-0169. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir 50 m2 lokahúsi við Arfadalsvík. Erindinu fylgja teikningar dagsettar 10.9.2015 unnar af OG arkitektastofu. Einnig fylgir umsókn um stofnun lóðar.Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt með fyrirvara um þinglýst lóðarblað. Skipulagsnefnd bendir á að byggingarleyfi eru gefin út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargöng berast.
8. Staðarsund 1: umsókn um byggingarleyfi
Erindi frá HH smíði kt. 430800-2480. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir 774,2 m2 iðnaðarsvæði við Staðarsund 1. Í erindinu er einnig óskað eftir stækkun á byggingarreit um 46 sm til suðurs. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt. Skipulagsnefnd bendir á að byggingarleyfi eru gefin út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn berast. Sviðstjóra falið að breyta mælablöðum í samræmi við umsóknina.
9. Tangarsund 5: Aðgengi að lóð
Erindi frá Hlyni Helgasyni. Í erindinu er óskað eftir að lóð þeirra við Tangarsund 5 verði stækkuð til samræmis við Tangarsund 4-6. Skipulagsnefnd bendir á að til þess þurfi að gera breytingu deiliskipulagi. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
10. Sveitarfélagið Ölfus: Breyting á Aðalskipulagi Ölfus 2010-2022
Tekin fyrir breyting á aðalskipulagi Ölfus 2010-2022. Tillagan er í sex liðum. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir.
11. Gamli bærinn: deiliskipulag
Málinu frestað