Skipulagsnefnd - 116. fundur
- 03.03.2023
- Fundargerð
- Kl. 16:15 - 18:15
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 116
- Ritari: Atli Geir Júlíusson
Nefndarmenn
- Lilja Ósk Sigmarsdóttirformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttirvaraformaður
- Hrannar Jón Emilssonaðalmaður
- Steinberg Reynissonaðalmaður
- Unnar Á. Magnússonaðalmaður
Starfsmenn
- Atli Geir Júlíussonsviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að taka inn mál á dagskrá með afbrigðum sem 4. mál: Spóahlíð 5 og 9 - umsókn um skipulagsbreytingu - 2303010
Samþykkt samhljóða.
1. Loftslagsstefna Grindavíkurbæjar
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að vinna málið áfram og setja vinnslu loftslagsstefnu í gang.
2. Endurskoðun svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja
Stefán Gunnar Thors frá VSÓ Ráðgjöf mætti á fundinn til að fara yfir og kynna vinnu við endurskoðun svæðisskipulags Suðurnesja.
3. Deiliskipulag miðbæjar í Grindavík
Stefán Gunnar Thors frá VSÓ Ráðgjöf mætti á fundinn til að fara yfir hvaða leiðir er hægt að fara við skipulag miðbæjar í Grindavík.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.4. Spóahlíð 5 og 9 - umsókn um skipulagsbreytingu
Grindin ehf. óskar eftir því að fá að gera deiliskipulagsbreytingu vegna lóðanna við Spóahlíð 5 og 9. Breytingin fellst í stækkun á byggingarreit þannig að stigahús standi innan hans.
Skipulagsnefnd samþykkir að farið verði með framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Spóahlíð 5 og 9 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa er falið að grenndarkynna skipulagstillöguna fyrir lóðarhöfum við Spóahlíð 1 og 3.
Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d.nefna breytingu á grunngögnum deiliskipulags og lóðarblöðum, kostnað sem verður til við færslu á innviðum á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar o.s.frv.